Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2412) og Margeir Pétursson (2423) héldu í dag áfram taflmennsku á flokkaskiptu móti í Póllandi, Ustron Chess Festival. Báðir eru þeir í Masters flokknum þar sem 54 keppendur taka þátt. Margeir er 10. stigahæsti maður mótsins en Aleksandr sá 13. stigahæsti. Sjöunda umferðin fór fram í dag.

Aleksandr hafði 3,5 vinninga af 6 og mætti pólskum andstæðingi ferð gegn FM Dawid Niekrasi (2316) og hafði svart. Sikileyjarvörn á boðstólnum og Sasha vann peð í miðtaflinu með tiltölulega einfaldri taktík og hélt yfirhöndinni alveg til loka eftir það.
Aleksandr hefur 4,5 vinning og fær hvítt á Witold Klepek (2240) í næstsíðustu umferðinni. Mögulegt er að sigur þar og í lokaumferðinni gæti nægt til að ná sér í IM áfanga.

Margeir fékk pólskan andstæðing Hubert Meers (2223), sem Aleksandr einmitt tefldi við og vann í fyrstu umferðinni. Margeir fékk mjög þægilega stöðu úr Sikileyarvörninni og var með biskupaparið og trausta stöðu. Ungur andstæðingur hans náði þó að snúa á Margeir seint í skákinni og snúa taflinu sér í vil.
Margeir fær hvítt á Bartlomiej Rog (2193) í umferð morgundagsins.















