Íslandsmeistari í fyrsta sinn Vignir Vatnar við taflið í félagsheimili Hauka. — Ljósmynd/Ómar Óskarsson.

Vignir Vatnar teflir nú á opnu móti í Marokkó, 4eme edition trophee S.M le Roi Mohammed VI COURONNE.

68 eru í flokknum og er Vignir númer 30 í styrkleikaröð. Stigahæstur er Azerinn Shakh Mamedyarov (2747).

Eftir erfiðan tvöfaldan dag var mikilvægt fyrir Vigni að stimpla sig aftur inn. Vignir fékk svart á heimamanninn  CM Marouane Fillali (2252) í sjöundu umferðinni. Vignir náði strategískt góðum uppskiptum á svartreitabiskupum snemma og taflið var alfarið stýrt af Vigni eftir það. Hann hélt pressu og braust í gegn í lokin. „Smooth“ eins og Maurice Ashley myndi segja!

Vignir fer yfir þessar skák á VignirVatnar.is

Í dag er tvöföld umferð og hefur Vignir lokið fyrri skákinni. Þar lagði Vignir alþjóðlega meistarann Ritvars Remianis frá Lettlandi. Vignir hafði hvítt og náði með tíð og tíma að véla peð af Ritvars. Í úrvinnslunni rann Vignir tvisvar á svellinu en Ritvars náði ekki að nýta sér það og Vignir náði að landa sigrinum, sanngjarn sigur heilt yfir.

Í áttundu umferð sem nú er í gangi er Vignir með hvítt á króatískan landsliðsmann, mjög sterkan skákmann, Marin Bosiocic sem hefur farið yfir 2600 elóstigin.

Lokaumferðin er svo á morgun.

- Auglýsing -