Íslensku keppendurnir á Ustron Chess Festival í Póllandi luku leik í dag í lokaumferðinni. Aleksandr gerði jafntefli í sinni skák og Margeir endaði með sigri.
Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2412) og Margeir Pétursson (2423) tefldu á flokkaskiptu móti í Póllandi, Ustron Chess Festival. Báðir voru þeir í Masters flokknum þar sem 54 keppendur tóku þátt. Margeir var 10. stigahæsti maður mótsins en Aleksandr sá 13. stigahæsti.

Aleksandr hafði 5 vinninga af 8 og mætti pólskum FM Andrej Lepic (2202). Aleksandr hafði svart og tefldi traust. Hvítur hafði alltaf meira rými en svartur var aldrei í teljandi vandræðum og jafntefli var samið í miðtaflinu eftir þráleik.
Aleksandr endaði með 5,5 vinninga og endar á að tapa 5 elóstigum á mótinu.

Margeir fékk svart á pólskan andstæðing Pawel Flak (2158) í lokaumferðinni. Margeir fékk snemma mun betra tafl úr byrjuninni eftir mistök Pólverjans og Margeir steig aldrei af bremsunni eftir það. Svartur byggði upp pressuna jafnt og þétt og á endanum varð eitthvað undan að láta og Margeir vann lið og sigldi vinningnum örugglega heim.
Margeir endaði því með 4 vinninga en var seinheppinn á mótinu og endar á að tapa 27 elóstigum.
Tyrkneskur alþjóðlegur meistari Umut Ata Akbas (2430) vann mótið með 7 vinninga af 9.















