Guðmundur Kjartansson að tafli.

Í gær hófst Northumbria Masters Í Newcastle, Englandi. Guðmundur Kjartansson (2458) er meðal þátttakenda og er stigahæstur af 28 keppendum.  Aðrir stórmeistarar á mótinu eru hinir geðþekku Englendingar Keith Arkell (2373) og Danny Gormally (2447).

Tefldar eru 9 umferðir og eins og á svo mörgum mótum þessi misserin er tempóið nokkuð hratt og fjórar dagar innihalda tvöfaldar umferðir.

Tvöföld umferð var tefld í gær. Í fyrstu umferðinni mætti Guðmundur Englendingnum Robert Willmoth (2125) sem er CM fæddur 1967. Guðmundur hafði hvítt og hafði sigur í þeirri skák.

Í seinni umferðinni fékk Guðmundur mun yngri andstæðing, ungan Englending Theo Khoury (2066) fæddur 2010. Guðmundur hafði svart og varð að sætta sig við jafntefli gegn greinilega efnilegum andstæðingi.

Í þriðju umferðinni á morgun mætir Guðmundur enn einum Englendingnum, Callum Brewer (2144) og hefur hvítt. Danny Gormally er með fullt hús en Keith Arkell aðeins hálfan vinning en hann tapaði fyrir ungum CM fæddum 2009 í 2. umferðinni.

Heimasíða mótsins

Chess-Results

- Auglýsing -