Aðalfundur T.R. var haldinn í kvöld. Ríkharður Sveinsson var endurkjörinn formaður til eins árs. Þær breytingar urðu á stjórn félagsins að Omar Salama, sem setið hefur í aðalstjórn, færðist niður í varastjórn og færðist Guðlaugur Gauti Þorgilsson upp í aðalstjórn í hans stað. Stjórnin er því skipuð eftirtöldum:
Aðalstjórn:
Ríkharður Sveinsson, formaður
Magnús Kristinsson
Una Strand Viðarsdóttir
Gauti Páll Jónsson
Jon Olav Fivelstad
Daði Ómarsson
Guðlaugur Gauti Þorgilsson
Varastjórn:
Eiríkur K. Björnsson
Torfi Leósson
Þorsteinn Magnússon
Omar Salama
Stjórnin hefur ekki skipt með sér verkum en fjölmörg verkefni bíða hennar.
Mæting á aðalfundinn var betri en oft áður og voru líflegar umræður um bjarta framtíð félagsins undir liðnum önnur mál.

Ríkharður Sveinsson er nú orðinn sá formaður T.R. sem hefur setið lengst í formannsstólnum samtals.

















