Magnus Carlsen hefur bætt enn einni rósinni í hnappagatið en hann varð í dag Heimsbikarmeistari í skák. Eftir næstum því mánuð af taflmennsku í Baku hefur norski snillingurinn bætt eiginlega eina stóra titlinum sem hann átti eftir við safnið…kannski er það bara Reykjavík Open næst?
Rennum yfir gang mála í dag.
Magnus Carlsen (2835) – Rameshbabu Pragganandhaa (2707)
Segja má að úrslitin hafi ráðist í fyrri bráðabanaskákinni. Pragga var með fína stöðu en tók kannski spennuna of snemma úr stöðunni í miðtaflinu. Smátt og smátt fór Carlsen að bæta stöðuna og hann nýtur sín oft vel í statískum stöðum og riddarar hans fóru að fá reiti í endataflinu. Carlsen hafði sigur í endataflinu.
Í seinni skákinni hafði Carlsen hvítt og beitti strategíu sem hann hafði notað áður á mótinu, hann tefldi 2.c3 Alapin afbrigðið gegn Sikileyjarvörninni. Magnus stýrði skákinni í auðvelt jafntefli og Pragga taldi sig ekki einu sinni hafa efni og áhöld til að reyna nokkuð þannig að hann bauð jafntefli í 22. leik.
The last moments as @MagnusCarlsen wins the 2023 #FIDEWorldCup, "the final feather in his cap"! pic.twitter.com/bCgb7BRSXp
— chess24.com (@chess24com) August 24, 2023
???? Magnus Carlsen is the winner of the 2023 FIDE World Cup! ????
Magnus prevails against Praggnanandhaa in a thrilling tiebreak and adds one more prestigious trophy to his collection! Congratulations! ????
???? Stev Bonhage #FIDEWorldCup pic.twitter.com/sUjBdgAb7a
— International Chess Federation (@FIDE_chess) August 24, 2023
Viðtal við sigurvegarann:
Fabiano Caruana(2782) – Nijat Abasov (2646)
Caruana náði að sýna styrkleikamuninn á þessum tveimur í bráðabananum. Fabi vann báðar skákirnar og tryggir sér bronsið. Abasov enn og aftur má vel við una, ein af stjörnum mótsins klárlega!
Skak.is þakkar lesendum fyrir að vera samferða í gegnum þetta mót, klárlega eitt af skemmtilegri mótum sem fram fara.
It's a wrap!
The #FIDEWorldCup concluded today with the closing ceremony!
Congratulations to the winner, ???? Magnus Carlsen, ???? Praggnanandhaa (runner-up) and ???? Fabiano Caruana (third place)!
???? Stev Bonhage pic.twitter.com/ThnVWhZftA
— International Chess Federation (@FIDE_chess) August 24, 2023
Útsending dagsins:
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar Chess.com | kvenna (skákir hefjast 11:00)
- Beinar útsendingar lichess | Kvenna















