Landsliðsmaðurinn Guðmundur Kjartansson (2458) tefldi tvær umferðir í gær á Northumbria Masters Í Newcastle, Englandi. Guðmundur er stigahæstur af 28 keppendum. Aðrir stórmeistarar á mótinu eru hinir geðþekku Englendingar Keith Arkell (2373) og Danny Gormally (2447).
Í þriðju umferðinni, fyrri umferð dagsins mætti Guðmundur Englendingnum, Callum Brewer (2144) og hafði hvítt, leikar skildu jafnir í þessari skák.
Í fjóðu umferðinni varð sömuleiðis jafntefli niðurstaðan. Guðmundur hafði þá svart á Indverjann Manmay Chopra (1899) fæddan 2007. Indverjarnir eru yfirleitt „underrated“ á þessum aldri og þessi líklegast engin undantekning. Frægt er þegar annar 16 ára Indverji hækkaði á um 3 mánuðum úr 2000 stigum í 2600 elóstig og notfærði sér háan svokallaðan K-stuðul sem yngri skákmenn hafa.
Guðmundur er í 5. sæti með 2,5 vinning en stórmeistarinn Danny Gormally er í fínu formi með 4 vinninga af 4 mögulegum.
Í 5. umferðinni, þeirri fyrri í dag, mætir Guðmundur Skotanum Ubong Archibong (2085). Sá er fæddur 1983 þannig að hann á ekki að eiga inni nein „efnilegheit“!
















