Hilmir Freyr Heimisson tekur þátt í lokuðum flokki á Copenhagen Chess Challenge. Um er að ræða lokaðan IM flokk með 10 keppendum. Hilmir er þriðji stigahæstur. Fjórir dagar með tvöföldum umferðum eru á boðstólnum á mótinu. Hilmir hefur nú lokið sex umferðum og má vel við una með 4 vinninga af 6.
Í fimmta umferð sem var seinni skák gærdagsins hafði Hilmir hvítt gegn IM Bjarke Sahl (2226) frá Noregi. Hilmir hafði betra tafl eftir byrjunina, rými og gott frumkvæði og á köflum virtist stutt í einhverskonar náðarhögg. Norski reynsluboltinn náði að verjast og komast í jafnt endatafl.
Hilmir fór í líklegast of aggressífar vinningstilraunir og lenti í því að hafa tapað tafl. Bjarke hefði með 49…h3! fengið unnið endatafl en missti sem betur fer af því og jafntefli varð niðurstaðan.
Í sjöttu umferð gerði Hilmir aftur jafntefli. Að þessu sinni var það sænski FIDE-meistarinn Martin Jogstad (2409) stigahæsta manni mótsins. Martin tefldi óvenju máttlítið með hvítu og Hilmir jafnaði taflið auðveldlega og fékk betra í miðtaflinu.
Hilmir fann rétta leið í miðtaflinu með dráði á f3 og Be5 en fygldi því ekki rétt eftir. Í stöðunni lék Hilmir 26…Bxb2? 27.Hxb2 Hxa3 en eftir 28.Hc1 kemst hvítur í hróksendatafl sem er líklegast jafntefli. 26…c4! hefði haldið spennunni og unnið peð undir betri kringumstæðum.
Jogstad náði að halda endataflinu og jafntefli niðurstaðan eins og áður sagði.
Í sjöundu umferðinni, seinni umferð dagsins mun Hilmir etja kappi við danska FIDE-meistarann Viktor Haarmark Nielsen (2343) og hefur Hilmir hvítu mennina.

















