Landsliðsmaðurinn Guðmundur Kjartansson (2458) tefldi sjöundu umferð í dag á Northumbria Masters Í Newcastle, Englandi. Guðmundur er stigahæstur af 28 keppendum. Aðrir stórmeistarar á mótinu eru hinir geðþekku Englendingar Keith Arkell (2373) og Danny Gormally (2447).
Guðmundur mætti Englendingnum Matthew Forster (2045) í sjöundu umferðinni og hafði sigur með hvítu mönnunum.
Sigurinn þýðir að Guðmundur hefur 5 vinning og er nú aðenis hálfum vinningi á eftir Danny Gormally og Steven A Jones (2197) sem hafa 5,5 vinning.
Guðmundur mætir Steven A Jones í 8. umferðinni, fyrri umferðinni á lokadeginum og hefur aftur hvítt.
- Auglýsing -

















