Í eldlínunni Hans Niemann við taflið á síðasta Reykjavíkurskákmóti. — Morgunblaðið/Ómar Óskarsson

Chess.com og Hans Niemann hafa kveikt í friðarpípum og samið sín á milli. Eins og frægt er kærði Hans Niemann Chess.com, Magnus Carlsen og Hikaru Nakamura og krafðist 100 milljón dollara í bætur fyrir árás á sitt mannorð í tengslum við svindlmálið á Sinquefield Cup árið 2022. Á mótinu lagði Niemann sjálfan Carlsen að velli og hafði byrjað mótið mjög vel. Carlsen hætti í mótinu eftir skákina og taldi maðk í mysunni. Carlsen neitaði jafnrframt að tefla við Niemann á netmóti skömmu síðar.

Chess.com greinir frá að málsaðilar hafi verið að semja sín á milli síðan í júni 2023 með það að markmiði að útkljá málið án þess að til komi málaflutningar í dómstólum. Hefur það nú tekist og samkomulag náðst á milli aðila.

Málsaðilar samþykkja að Chess.com, Hans Niemann, Magnus Carlsen og Hikaru Nakamura hafi allir sínar skoðanir á málsatvikum og sé frjálst að ræða hana opinberlega.

Opinber yfirlýsing Chess.com er svohljóðandi:

“We are pleased to report that we have reached an agreement with Hans Niemann to put our differences behind us and move forward together without further litigation. At this time, Hans has been fully reinstated to Chess.com, and we look forward to his participation in our events. We would also like to reaffirm that we stand by the findings in our October 2022 public report regarding Hans, including that we found no determinative evidence that he has cheated in any in-person games. We all love chess and appreciate all of the passionate fans and community members who allow us to do what we do.”

Í stuttu máli þá hefur Hans Niemann í raun aftur fengið „keppnisleyfi“ á netþjónum Chess.com og í stórum netmótum þeirra. Chess.com telur jafnframt engin sönnunargögn liggja fyrir um að Niemann hafi svindlað yfir borðinu en ljóst er og lá alltaf fyrir að Niemann svindlaði á netinu „í gamla daga“.

Jafnframt er yfirlýsing frá Magnus Carlsen

“I acknowledge and understand Chess.com’s report, including its statement that there is no determinative evidence that Niemann cheated in his game against me at the Sinquefield Cup. I am willing to play Niemann in future events, should we be paired together.”

Carlsen er semsagt tilbúinn að tefla við Niemann ef til þess kemur að þeir lendi saman í mótum í framtíðinni.

Í frétt Chess.com kemur jafnframt yfirlýsing frá Hans Niemann:

„I am pleased that my lawsuit against Magnus Carlsen and Chess.com has been resolved in a mutually acceptable manner, and that I am returning to Chess.com. I look forward to competing against Magnus in chess rather than in court and am grateful to my attorneys at Oved & Oved for believing in me and helping me resolve the case“

Niemann er semsagt frjálst að tefla á Chess.com og gæti haldið upp á það með því að taka þátt í Titled Tuesday strax á morgun!

Vonandi er þetta mál nú til lykta leitt og þessir snillingar geta vonandi einbeitt sér að reitunum sextíuogfjórum í framtíðinni!

Tilkynning Chess.com

- Auglýsing -