TR-ingurinn ungi Benedikt Þórisson (1851) hefur óvænt tekið forystu í Áskorendaflokki en hann hefur fullt hús eftir fjórar umferðir! Í fjórðu umferð lagði hann Jóhann Ragnarsson að velli með mjög hvössum undirbúningi gegn Caro-kann vörninni. Bragi Þorfinnsson, Olga Prudnykova og Benedikt Briem unnu öll sínar skákir og hafa 3,5 vinning af 4.

Á efsta borði mætti Benedikt Þórisson TG-ingnum knáa Jóhanni Ragnarssyni (1866) á efsta borði. Báðir hafa farið glæsilega af stað í þessum Áskorendaflokki og voru mjög óvænt í toppuppgjöri fjórðu umferðar.

Benedikt valdi mjög hvassa leið gegn Caro-kann þar sem hvítur gefur d4-peðið og b2-peðið en fær mjög góða liðsskipan og hættulegt frumkvæði. Benedikt viðurkenndi eftir skákina að hafa gleymt hvað væri besta línan en náði engu að síður að leika bestu leikjunum fram að 12.Hb4?! sem er ekki besti leikurinn. Svartur varð að finna 12…Dc3! en eftir 12…e6?? er hvítur með hartnær unnið tafl. Svartur nær ekki að hróka án þess að tapa liði og Benedikt vann sanngjarnan sigur. Benedikt hefur teflt mjög hvasst í síðustu tveimur skákum og það hefur gefið vel.

Á öðru borði mættust Olga Prudnykova (2268) með hvítt og Mikael Jóhann Karlsson (2127). Á boðstólnum var skandinavísk vörn og virtist Olga nokkuð vel klár í slaginn. Hún tefldi mjög hvasst og náði óvæntum vágesti djúpt inni í svörtu stöðunni.

Ekki oft sem maður sér riddara svona djúpt í herbúðum andstæðingsins með öll peðin á upphafsreitum allt í kring!

Staðan var þó engan veginn auðteflanlega og eftir 19.Bd3?? telja tölvuforritin stöðuna meira að segja betri á svart! Mikael fann ekki allra bestu leiðina þannig að hvítur hafði betra tafl. Það virtist þó allt stefna í langa skák þar sem svartur hafði tvö peð fyrir skiptamuninn.

Á einhvern ótrúlegan hátt er svartur hinsvegar algjörlega leiklaus eftir 29.Hd3! Ekki er hægt að hreyfa kónginn þar sem hann þarf að valda hrókinn og það er enginn leið að stoppa framrás f-peðsins til þess að vinna riddarann. Mikael gafst upp í stöðunni.

Á þriðja borði tefldu þeir Benedikt Briem (2207) með hvítt og Andrey Prudnikov (2036). Á boðstólnum var Grunfeld og hvítur virtist fá betri færi en Andrey kom skákinni í endatafl sem hlýtur að vera steindautt jafntefli. Eina sem Benedikt hafði var aðeins betri kóngur.

Það taldi þó eftir afleik Andrey 38…g5?? sem skilur f5 peðið eftir of veikt. Benedikt vann peð og náði að svíða. Gríðarlegt styrkleikamerki að klára slíkar steindauðar stöður á einhverskonar keppnisskapi/seiglu!

Á fjórða borði hafði stórmeistarinn Bragi Þorfinnsson (2394) hvítt gegn Lenku Ptacnikova (2139). Bragi fékk lítið úr byrjuninni og var með verra ef eitthvað var. Misráðinn leikur Lenku í 16. leik sneri hinsvegar stríðsgæfu hvíts til hins betra.

16…Re4?? færði hvítum vænlega sóknarstöðu eftir 17.Rxe4 dxe4 18.Bc4 og Bragi vann í aðeins 25 leikjum!

Alþjóðlegi meistarinn Davíð Kjartansson (2292) hafði lengst af mun betra tafl gegn Adam Omarssyni (1862). Adam sýndi mikið baráttuþrek og gaf sig engan veginn þrátt fyrir erfitt tafl lengst af og á endanum varð Davíð að sætta sig við þrátefli og jafntefli. Þessi skák kannski kristallar hversu erfitt það er orðið fyrir stigaháa skákmenn að halda sínum stigum. Stigalægri skákmenn í dag eru einfaldlega ljósárum betri en í „gamla daga“ og engin leið að ganga að neinni skák sem „skyldupunkt“.

Bárður Örn Birkisson (2191) virðist hafa jafnað sig á svekkjandi tap fyrr á mótinu og vann tiltölulega auðveldan sigur með hvítu gegn Haraldi Baldurssyni (1798). Bárður er allavega kandídat í leik umferðarinnar.

Hér kom 20.Hf8!! og hvítur endar með svarta kónginn í mátneti. Bárður vann í 27 leikjum.

Grikkinn Mistiliougluou er klárlega betri en 1582 elóstig segja til um. Hann tefldi vel framan af gegn Birni Hólm en 21…Had8? var ekki nógu góður.

Stundum þarf ekki meira til. 22.Rxe5! dugði til að vinna peð þar sem hrókurinn á d8 verður oní í lokin. Þetta dugði Birni til sigurs.

Augnablikið þar sem skákin réðst

Arnar Milutin Heiðarsson (2109) hefur verið seinheppinn þar sem af er móti. Í dag var hann hinsvegar bara kærulaus. Markús Orri Jóhannsson (1442) er sýnd veiði en ekki gefin. Arnar gaf færi á sér með fljótfærni og Markús nýtti sér það.

22.Df3 Ha7 23.De3! og svartur ræður ekki við tvöfalda hótun, hrókurinn á a7 er ofaní og mát í borði yfirvofandi.

Sigurður Páll Guðnýjarson er ungur, efnilegur og samviskusamur skákmaður. Hann vann góðan sigur á Venezúelabúanum Roberto Eduardo Osorio Ferrer og splæsti í einn góðan „flottræfil“. Flottræfill er flottur leikur sem er ekki endilega bestur en ógeðslega flottur!

Sigurður lék hér 29…Bxc5. Hugmyndin er að ef 30.dxc5 kemur 30….d4 og a-peðið verður ekki stöðvað. Svartur vann endataflið án vandkvæða.

Birkir Hallmundarson hafði heppnina með sér. Andstæðingur hans, Sigurbjörn Hermannsson bjóst við að hvítur ætlaði sér að drepa peðið á d6 svo hann lék 50…Kxh6?? en vaknaði upp við vondan draum eftir 51.Hh8+ og Blikinn ungi hafði snúið taflinu sér í vil.

Úrslit:

Hægt er að nálgast skákir 4. umferðar inni á lichess hér. Einnig hægt að hala niður 4. umferð á PGN hér.  Beinar útsendingar eru bara á LiveCloud (sjá link að neðan) en skákir eru settar inn á lichess eftirá.

Í 5. umferð sem fer fram á morgun klukkan 18:30 mætast Bragi með hvítt og spútnikmaður mótsins, Benedikt Þórisson. Olga gegn Benedikt er athyglisverð viðureign á örðu borði og ljóst að allir þurfa að klóra og krafsa til að vinna fyrir sínum vinningum!

Teflt verður á hverjum degi næstu  daga um tvö sæti í landsliðsflokki að ári. Umferðir um helgar byrja 13:00 en á virkum dögum 18.30. Oddastigaútreikningur* ræður lokaröð sæta.

Tveir ungir og efnilegir sem báðir fara á EM ungmenna í Rúmeníu í byrjun næsta mánaðar.
Birnukaffi er ómissandi hluti af mótum í Taflfélaginu. Veitingar á góðu verði og alltaf gott og skemmtilegt spjall við drottningu Taflfélagsins, Birnu!

 

- Auglýsing -