Það var metþátttaka á Bankanum Bistro í gærkvöldi þar sem 55 keppendur mættu til leiks!
Mótið fór fram við frábærar aðstæður á Bankanum Bistro og vill undirritaður ítreka þakkir til Óla Vals Steindórssonar fyrir að halda þessa glæsilegu mótaröð.

Fór það svo að Vignir Vatnar Stefánsson vann mótið eftir að hafa unnið Hannes Hlífar Stefánsson í Armageddon skák um sigur á mótinu.

Hjörvar Steinn Grétarsson endaði í þriðja sæti með 8.5 vinning.

Birkir Ísak Jóhannsson og Jóhann Hjartarson voru jafnir í 4-5 sæti með 7.5 vinning.
Óvænt hetja gærkvöldsins var Hörður Magnússon (Höddi Magg) en hann vann sigur í U1600 flokknum og lagði m.a að velli sterkustu skákkonu Íslands.

Benedikt Þórisson vann U2000 flokkinn.

Hér má svo sjá lokastöðuna í mótaröðinni en 12 efstu komust áfram í úrslit sem haldin verða laugardaginn 21. október

Þar sem Dagur Ragnarsson & Arnar Gunnarsson voru jafnir að vinningum – þurfa þeir að mætast í Armageddon skák þann 21. Október upp á hver fær að vera með á lokamótinu.
Kærar þakkir fyrir mótaröðina og það er aldrei að vita nema við bjóðum upp á aðra mótaröð 2024.
Bestu kveðjur,
CAD
















