Keppni hélt áfram á Evrópumeistaramóti ungmenna á Mamaia í Rúmeníu í dag. Íslensku keppendunum gekk ekki vel í dag og aðeins komu tvö jafntefli í hús í sex skákum.

Íslensku keppendurnir að þessu sinni eru: Aleksandr Domalchuk-Jonasson og Benedikt Briem í U18, Matthías Björgvin Kjartansson í U14, Josef Omarsson í U12, Birkir Hallmundarson í U10 og Emelía Embla B. Berglindardóttir í U10 stelpna. Þjálfari er FIDE-meistarinn Ingvar Þór Jóhannesson.

U18

Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2407) er númer 14 í styrkleikaröðinni og mætti pólska FIDE-meistarnum Tymon Ochedzan (2220) en fyrir nokkrum vikum vann Aleksandr hann með hvítu mönnunum. Nú fékk Aleksandr svart og var vel undirbúinn fyrir aðallínur í franskri vörn. Sá pólski kom hinsvegar á óvart með 3.Bd3, hliðarvaríanti sem er óvenju vinsæll undanfarið. Okkar maður brást ekki nógu vel við og féll eiginlega í byrjunargildru. Svartur var í nauðvörn lengst af en samblanda af góðri vörn svarts og lélegri úrvinnslu hvíts bjargaði hálfum punkti í hús!

Benedikt Briem (2207) hafði líka svart og var í fínum málum en teygði sig líklega of langt og varð að lúta í dúk. Byrjun undir væntingum hjá Benedikt en nóg eftir af mótinu.

U14

Matthías Björgvin Kjartansson (1680) fékk Azera, Nihad Ahmadli (1345) sem tefldi ljósárum betur en stigin gefa til kynna. Azerinn fann fallega taktík í miðtaflinu sem réði úrslitum.

U12

 

Josef Omarsson (1764) er númer 38 í styrkleikaröðinni í sínum flokki og vann í fyrstu umferð. Hann mætti stigaháum Frakka Paul Boulous (2073) og hafði hvítt. Skákin var sú eina sem var í beinni útsendingu. Josef er mjög duglegur að undirbúa sig og var algjörlega klár í bátana í drottningarbragði. Josef fékk þægilegra tafl og einhverja smá stöðulega sénsa en sá franski varðist vel og jafntefli á endanum fín úrslit, Josef aldrei í neinni hættu.

U10

Birkir Hallmundarson tefldi við Daniel Bannura (1147) frá Kýpur. Birkir tefldi skákina mun betur með hvítu og var með mikla stöðulega yfirburði og var í raun að gera allt rétt. Upp úr þurru átti svartur allt í einu heppnistaktík í stöðunni sem vann skiptamun fyrir svart. Þrátt fyrir það gat hvítur enn barist, svo góð hafði staðan verið en nú loks fór Kýpverjinn að tefla betur og náði að vinna skákina. Ákveðin óheppni en svona er skákin stundum, síðasti afleikurinn tapar.

 

U12 stúlkna

 

Emilía Embla B. Berglindardóttir (1238) mætti ísraelskri stúlku Itael Ribstein (1045). Eins og í gær var Emilía að tefla vel framan af skákinni og komin peði yfir. Við tókum þann lærdóm úr fyrstu tveimur skákunum að huga betur að kóngsstöðunni og þá er hægt að njóta betur ávaxta liðsvinningana!

Úrslitin:

Staðan:

Aleksandr og Josef eru þeir einu sem eru komnir á blað. Við erum á því að smá ferðaþreyta sitji enn í nokkrum og við erum líka sammála um að hún verði hrist af á morgun!

Þriðja umferð fer fram á morgun og hefst hún eins og þær flestar klukkan 12:00 að íslenskum tíma. Aleksandr mætir heimamanni, Voicu Teodor-Mihnea (2162) og Josef fær Armena Vache Kocharyan (2034).

- Auglýsing -