Í þættinum Við skákborðið ræddi Kristján Örn Elíasson við stórmeistarana Friðrik Ólafsson og Jóhann Hjartarson. Þeir félagar rifjuðu upp tímabil Friðriks í embætti forseta FIDE, samskipti sín við skákmenn, pólitíkina í skákinni þar sem afskipti leyniþjónustu Sovétríkjanna (KGB) af skákmeisturum koma við sögu.

Það er óhætt að segja að stórmeistararnir Friðrik og Jóhann hafi marga fjöruna sopið á skákferli sínum og að á ýmsu hafi gengið í samskiptum og viðureignum þeirra við fjölmarga sterka skákmenn í gegnum tíðina.

Friðrik sagði meðal annars frá kynnum sínum af Viktor Lvovich Korchnoi sem hann kynntist árið 1956 á skákmóti í Hastings sem hann segir að hafi verið sitt fyrsta verulega sterka skákmót þar sem hann varð efstur ásamt Korchnoi.

„þessi fyrstu kynni mín af honum voru alveg ágæt og hann kom mjög vel fyrir og ég hafði ekkert nema gott af honum að segja en síðar breyttist þetta aðeins þegar árin liðu. Hann yfirgaf Sovétríkin þar sem hann linnti ekki við stjórnvöld þar“

Leiðir Friðriks og Korchnoi lágu oft saman í gegnum tíðina bæði við skákborðið og utan þess en á árinu 1980 hafi orðið ákveðin tímamót.

„þá voru miklar væringar í FIDE því ég var kominn með ákveðið Korchnoi vandamál á mínar herðar og það er kannski sú saga sem spinnst um okkur Jóhann meira og minna,“segir Friðrik.

Friðrik rifjaði einnig upp sögu af Bobby Fischer þegar þeir voru að keppa á skákmóti í Belgrad.

„þarna vorum við að borða morgunverð á hótelinu og þarna var talsvert af moskítóflugum og Fischer tók hnífinn og byrjaði svona að stugga þeim í burtu og svo tók hann sig til og skar sumar í sundur. Við báðum hann að hætta þessu en þá sagði Fischer að svona myndi hann fara með andstæðinga sína í framtíðinni,“ segir Friðrik.

Stórmeistararnir Friðrik Ólafsson og Jóhann Hjartarson: Þeir voru á sínum tíma á meðal allra sterkustu skákmanna heims

- Auglýsing -