Fleiri vinningar komu í hús hjá íslensku keppendunum í þriðju umferðinni en í fyrstu tveimur umferðunum samtals! Alls kom 3,5 vinningur í hús á Evrópumeistaramóti ungmenna hér á Mamaia í Rúmeníu í dag.

U18

Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2407) mætti heimamanni, Teodor-Mihnea Voicu (2162). ALeksandr beitti enska leiknum og úr varð mikil stöðubarátta. Líktist miðtaflið einna helst einhverskonar peðastöðu úr Nimzo-indverskri vörn. Rúmeninn tefldi gríðarlega hratt alla skákina og vildi Aleksandr meina að mögulega hefði enginn teflt svona hratt gegn honum. Okkar maður sýndi stóíska ró og yfirvegun og tefldi miðtaflið af öryggi og tók svo yfir á kóngsvægnum þegar færi gafst.

Benedikt Briem (2207) stimplaði sig inn eftir erfiða byrjun. Hann mætti Króata, Matej Friscic (1960) og tefldi af nokkuð góðri festu. Á einum stað var Benedikt aðeins of fljótfær þegar hann taldi vænlega leið gefa honum vinning en þess í stað komst svartur aftur inn í skákina. Benedikt þurfti því eiginlega að „vinna skákina aftur“ og hafði það af í endataflinu.

U14

Matthías Björgvin Kjartansson (1680) mætti Kýpverja Leonardo Zangrilli (1415). Í krítískri stöðu missti Matthías af riddarahoppi sem gaf Kýpverjanum liðsvinninga og taflið erfitt eftir það.

U12

Josef Omarsson (1764) var aftur í beinni útsendingu og mætti stigaháum, grjóthörðum og einbeittum Armena, Vache Kocharyan (2034) með svörtu. Josef hefur verið mjög duglegur að stúdera og er með virkilega gott hugarfar til að bæta sig, slær inn skákir og lærir af mistökum hvort sem hann vinnur eða tapar. Þessi skák fer klárlega í reynslubankann, Armeninn hitti á afbrigði sem Josef hefur minna teflt og það verður lært af því.

U10

Birkir Hallmundarson (1565) tefldi við stigalausan Svartfelling Tadija Glusica. Sá hefur þó teflt á gríðarlega mörgum atskákmótum á árinu en engum kappskákmótum. Kannski var það skýringin á leiðinlegri framkomu en Svartfellingurinn bauð ítrekað jafntefli og var kominn í 4-5 jafnteflisboð fyrir 20. leik Birkis. Birkir lét það þó ekki á sig fá og hafði sigur í langri skák í endatafli. Birkir var óhræddur að fórna skiptamun fyrir tvö peð og hélt góðri stjórn á stöðunni og tefldi menntað. Vonandi stígandi hjá Birki í kjölfarið á þessari góðu skák en hann var óheppinn með úrslit í gær.

U12 stúlkna

Emilía Embla B. Berglindardóttir (1238) náði sér í sín fyrstu úrslit á Evrópumóti ungmenna hér á Mamaia. Emilía hafði svart gegn bosnískri stelpu, Rakas Jona Arandjelovic (1007). Sú bosníska náði undirtökum eftir byrjunina en Emilía barðist vel í vörninni og eftir langa og stranga skák hélst jafnteflið þar sem hvítur hafði vitlausan biskup með kantpeði sínu og engin leið til að vinna.

Úrslitin:

Staðan:

Aleksandr í góðum málum með 2,5 vinning og fær mikilvæga skák næst. Vonandi nást fleiri góðar umferðir eins og í dag!

Þriðja umferð fer fram á morgun og hefst hún eins og þær flestar klukkan 12:00 að íslenskum tíma. Aleksandr mætir stigaháum Azera, Khazar Babazada (2463). Aðrir tefla niður fyrir sig í stigum en það er margkomin reynsla á það að stigin tefla ekki, sérstaklega á þessum mótum!

- Auglýsing -