Speed Chess Championship (SCC) er eitt elsta og skemmtilegasta elítu-netmótið sem fram fer á hverju ári. Á fyrstu árunum mættust Magnus Carlsen og Hikaru Nakamura þar iðullega í úrslitum en á meðan Carlsen hafði viðskiptatengsl við aðrar netsíður tók hann ekki þátt í SCC fyrr en fyrirtæki Magnus sameinaðist Chess.com í kringum Hans Niemann málið.

Magnus Carlsen tók því þátt í SCC í fyrra og mætti þar Nakamura í úrslitum. Að þessu sinni vann Nakamura og staðan því í úrslitaeinvígjum þeirra 2-1 Carlsen í vil.

Í SCC er fyrst teflt í ákveðinn tíma 5+1 skákir, þá 3+1 skákir og að lokum 1+1

Einvígið núna varð algjörlega magnað og hægt er að horfa á útsendinguna frá byrjun hér að neðan. Öngvir „spoilerar“ hér eða höskuldarviðvaranir!

Einnig er hægt að skoða skákirnar hér á Chess24

 

- Auglýsing -