Nú er þremur umferðum lokið á Heimsmeistaramóti 20 ára og yngri í Mexíkóborg í Mexíkó. Báðir Íslendingarnir hafa 2,5 vinning að loknum þremur umferðum. Tvöföld umferð fór fram í gærkvöld/nótt og voru úrslit Íslendingana svipuð. Báðir unnu þeir sína skák í 2. umferð og gerðu svo jafntefli í þriðju umferðinni.
Vignir og Aleksandr fengu báðir vinning í fyrstu umferðinni. Andstæðingur Vignis mætti ekki til leiks og Aleksandr vann gegn skákmanni með rétt yfir 1600 elóstig.
Vignir var í beinni útsendingu í 2. umferðinni en þar fékk hann svart á kanadískan FIDE meistara Johnathan Han (2252). Vignir hafði svart og tók ákveðna áhættu með djörfu plani í Philidor vörn þar sem svartur fer í peðaframrás á kóngsvæng og býður með að hróka. Simon Williams hefur t.a.m. mælt með svipuðum leiðum á svart.
Vignir fékk kannski ekki nóg til að valda hvítum vandræðum en var á móti aldrei í neinni hættu sjálfur. Tækifærið kom þó í 35. leik eftir slakan leik hvíts 35.De1??
35…Be3! var svínslegt línurof og svartur vinnur skiptamun. Eftirleikurinn var auðveldur, þó svarti kóngurinn sé að einhverju leiti berskjaldaður hafði svartur það góð tök á svörtu reitunum að vinningurinn var auðsóttur.
Aleksandr fékk stigalausan andstæðing á sama tíma. Oft er erfitt að lesa í stigalausa andstæðinga en eftir 13. leik var Aleksandr líklega nokkuð viss um að sigurinn yrði auðsóttur.
13.Hb1? var mjög furðulegur leikur. Hvítur kemur ekki manni út, valdar ekkert sem þarf að valda og bætir stöðuna ekki neitt. Eftirleikurinn varð skiljanlega auðveldur, spurning hvaða erindi slíkir skákmenn eiga í jafn sterkt mót.
Í þriðju umferðinni byrjaði alvaran að fullu. Vignir fékk hvítt á franskan FM Benjamin Defromont (2418). Vignir hafði hvítt í Catalan og virtist fá þægilegra tafl án vandræða. Tölvumatið var hliðhollt hvítu stöðunni nánast alla skákina en erfitt var að fá meira úr stöðunni og svartur náði að redda sér í tvöföldu hróksendatafli. Jafntefli niðurstaðan.
Aleksandr hafði líka hvítt og mætti slóvenskum stórmeistara Jan Subelj (2492). Eins og Vignir þá fékk Aleksandr mjög vænlega stöðu og ef tekið er mið af tölvumati þá fékk Aleksandr í raun mun betri færi á að klára sína skák en Vignir. Hvíta staðan var alltaf betri en á endanum reyndist umframpeð ekki nóg í endatafli með peð, öll á sama væng.
Strákarnir því báðir með 2,5 vinning af 3 og litlu mátti muna að annar eða báðir hefðu fullt hús.
Stigahæsti keppandinn, Hans Niemann (2667) tapaði óvænt í þriðju umferðinni með hvítu mönnunum. Hans mætti öðrum Bandaríkjamanni, alþjóðlega meistaranum Andy Woodward (2480) sem fæddur er árið 2010!! Sannarlega óvænt en þessir ungu strákar eru engin lömb að leika við, það er morgunljóst!
IM Andy Woodward (???????? 2480) has a good chance to defeat Hans Niemann with the black pieces in the third round of the FIDE World Junior Championship. https://t.co/DxH3fC7RYF pic.twitter.com/V3gt0VR7XE
— David Llada ♞ (@davidllada) September 23, 2023
Pörun fjórðu umferðar er ansi leiðinleg en samkvæmt chess-results mætast þeir Vignir og Aleksandr í umferðinni. Vignir hefur hvítt. Þessi pörun kemur eilítið á óvart þar sem fréttaritari Skak.is paraði í Swiss-Manager þegar öll úrslit lágu fyrir og fékk aðra niðurstöðu. Slíkt á ekki að gerast og því kemur þessi pörun eilítið á óvart!
Ísland á tvo fulltrúa á Heimsmeistaramóti 20 ára og yngri í Mexíkó. Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2484) er númer 19 í styrkleikaröðinni og Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2407) er númer 36 í styrkleikaröð. Stigahæstur keppenda er hinn umdeildi Hans Moke Niemann (2667) sem hefur verið mikið milli tannanna á fólki undanfarið. Skráðir keppendur eru 149.
Tefldar verða 11 umferðir og er dagskráin eftirfarandi (tímar íslenskir)
- umferð 21. september LOKIÐ
- umferð 22. september LOKIÐ
- umferð 22. september LOKIÐ
- umferð 23. september klukkan 22:00
- umferð 24. september klukkan 22:00
- umferð 26. september klukkan 22:00
- umferð 27. september klukkan 22:00
- umferð 28. september klukkan 22:00
- umferð 29. september klukkan 22:00
- umferð 30. september klukkan 22:00
- umferð 1. október klukkan 16:00
Frídagur er mánudaginn 25. september
- Beinar útsendingar (lichess)
- Beinar útsendingar (chess.com)
- Beinar útsendingar (chess24)
- Chess-Results
- Heimasíða mótsins















