Íslenska sveitin á HM heldur áfram góðu gengi á HM öldungasveitaí Struga í Norður-Makedóníu. Íslenska sveitin lagði í dag sveit frá Svartfjallalandi að velli og eru okkar menn einir í efsta sæti þar sem Bandaríkjamenn lögðu Englendinga að velli.

Andstæðingar dagsins, Predrag Nikac hvíldi hjá Svartfellingum.

Hjá okkur hvíldi Jóhann í umferð dagsins.

Jóhann að tafli í Struga Mynd: Livshitz / Heimasíða mótsins

Viðureign þróaðist mjög rólega. Lengi framan af voru flestar skákir í jafnvægi en heilt yfir virtist íslenska liðið alltaf eiga örlítið betri sénsa á að geta unnið en á móti vorum við hvergi í hættu á neinu borði.

Helgi fyrr í mótinu gegn kínversku sveitinn M.Livshitz / heimasíða móts

Helgi Ólafsson hafði svart á fyrsta borði og tefldi af mikilli festu. Móttekið drottningarbragð og Helgi gaf hvergi færi á sér. Ábyrgð liðataflmennska hér á ferð.

 

Þröstur að tafli Mynd: Mark LIvshitz / Heimasíða mótsins

Þröstur hafði hvítt á fjórða borði og var næstur að klára. Þröstur hafði allt aðeins þægilegra tafl og einhverja sénsa. Þröstur stýrði taflinu svo í jafntefli þegar ljóst var í hvað stefndi á öðrum borðum.

Það virðist hafa verið uppleggið að tefla mjög solid og bíða átekta seinna í taflinu og vera vel með á nótunum.

Jón L var þegar Þröstur samdi búinn að snúa taflinu sér í vil. Lengst af hafði staðan verið í jafnvægi, Jón tefldi traust með svörtu og hvítur skapaði í sjálfu sér engin vandræði. Í hróksendataflinu missti Svartfellingurinn fótanna og Jón fékk skyndilega unnið tafl.

Hér var sigurinn allt að því í höfn þar sem Margeir sigldi lygnan sjó með hvítu og var auk þess alltaf líklegastur af okkar mönnum til að búa eitthvað til. Margeir hafði þægilegt tafl og komst svo í kóngssókn í lokin og vann sigur.

Fín úrslit, nokkuð öruggur 3-1 sigur. Segja má að enginn hafi verið í taphættu og liðið því alltaf með vaðið fyrir neðan sig.

Íslenska liðið er nú eitt í efsta sæti þar sem bandaríska liðið lagði enska liðið að velli.

Tapið gæti orðið dýrtkeypt hjá Englendingum. Jafntefli varð á öllum borðum en Kaidanov sveið endatafl gegn John Emms.

Emms lék 52…Kg7 sem tapar. Hann hefur tíma og verður að valda peðið með 52…Hb4 og staðan er jafntefli. Hér hefði komið sér vel ef Emms hefði t.d. skrifað bók um hróksendatöfl!

Emms hafði það ekki af í þetta skiptið.

Íslendingar og Bandaríkjamenn mætast í sjöttu umferðinni. Alvöru andstæðingur og nú reynir virkilega á liðið!

Bandaríska liðið skipað að öllu leiti af aðfluttum Sovétmönnum sem flestir hafa þó mjög lengi búið í Bandaríkjunum og teflt fyrir þá.

Bandaríkjamenn hafa hvítt á fyrsta borði.

Taflmennskan hefst klukkan 13:00 alla daga og beinar útsendingar eru á lichess, Chess.com og Chess24 og eru skákskýringar Alex Colovic á chess24 hlekknum.

Íslenska liðið er númer fimm í styrkleikaröðinni og liðið skipa fjórmenningaklíkan auk Þrastar Þórhallssonar, allt stórmeistarar.

  1. Helgi Ólafsson (2491)
  2. Jóhann Hjartarson (2432)
  3. Margeir Pétursson (2396)
  4. Jón L. Árnason (2419)
  5. Þröstur Þórhallsson (2382)

Bandaríkin og England hafa feykisterk lið og bandaríska liðið er mjög sigurstranglegt. Alls eru 22 sveitir skráðar til leiks.

- Auglýsing -