Íslensku keppendurnir lentu í leiðindapörun í fjórðu umferð og mættust við taflborðið í Mexíkó á 150 manna Heimsmeistaramóti. Frekar mikil óheppni þar á ferðinni. Innbyrðis skák þeirra var tíðindalítil og jafntefli samið eftir þráleik í 32. leik.
Pörun í 5. umferð er eftirfarandi:
Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2407) fær hvítt á Frakkann Joseph Girel (2494) en sá er alþjóðlegur meistari.
Sá sama tíma mætir Vignir Vatnar Stefánsson (2484) skákmanni frá Portúgal Jose Guilherme Santos Barria (2392) en hann er FIDE meistari.
Um mótið:
Ísland á tvo fulltrúa á Heimsmeistaramóti 20 ára og yngri í Mexíkó. Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2484) er númer 19 í styrkleikaröðinni og Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2407) er númer 36 í styrkleikaröð. Stigahæstur keppenda er hinn umdeildi Hans Moke Niemann (2667) sem hefur verið mikið milli tannanna á fólki undanfarið. Skráðir keppendur eru 149.
Tefldar verða 11 umferðir og er dagskráin eftirfarandi (tímar íslenskir)
- umferð 21. september LOKIÐ
- umferð 22. september LOKIÐ
- umferð 22. september LOKIÐ
- umferð 23. september LOKIÐ
- umferð 24. september klukkan 22:00
- umferð 26. september klukkan 22:00
- umferð 27. september klukkan 22:00
- umferð 28. september klukkan 22:00
- umferð 29. september klukkan 22:00
- umferð 30. september klukkan 22:00
- umferð 1. október klukkan 16:00
Frídagur er mánudaginn 25. september
- Beinar útsendingar (lichess)
- Beinar útsendingar (chess.com)
- Beinar útsendingar (chess24)
- Chess-Results
- Heimasíða mótsins
















