Svo segir í texta í Samráðsgáttinni

Áformin sem hér eru kynnt eru um ný heildarlög um skák. Í nýjum lagabálki verði fjallað um skák, laun og styrki til afreksfólks í skák og Skákskóla Íslands, en horft verði til þess að reglur verði einfaldaðar frá því sem nú er.

Samhliða er áformað að fella brott lög um launasjóð stórmeistara í skák, nr. 58/1990, og lög um Skákskóla Íslands, nr. 76/1990, tóku gildi árið 1991. Íslenskt samfélag hefur breyst mikið frá því að lögin voru sett og það fyrirkomulag sem þau mæla fyrir um samræmist illa nútíma stjórnsýsluumhverfi.

Helstu breytingar sem lagðar eru til eru nýtt fyrirkomulag um laun eða styrki til stórmeistara í skák, sem verða þá ekki lengur opinberir starfsmenn, þar sem horft verði í meira mæli til einstakra verkefna og framgangs þeirra. Þá verður horft til þess möguleika að styrkja unga og upprennandi skákmenn, sem stefna að alþjóðlegum árangri, en hingað til hafa eingöngu þeir sem hlotið hafa nafnbótina stórmeistari fengið greiðslur úr ríkissjóði.

Markmið frumvarpsins er að taka á álitamálum sem lengi hafa verið til umræðu. Frumvarpið á að hvetja afreksfólk í skák enn meira en nú er til að tefla sem mest til þess að ná hámarksárangri. Stefnt er að því að ný löggjöf gefi aukna möguleika á því að styðja ungt og efnilegt fólk til afreka í skák. Þá er stefnt að því markmiði að einfalda og nútímavæða lagaumhverfi um skák.

Umsagnarfrestur er til 17. nóvember 2023. Umsagnir verða birtar jafnóðum og þær berast.

Nánar í Samráðsgáttinni

- Auglýsing -