Tvö mót hófust samstíga miðvikudagskvöldið 18. október í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur í Faxafeni 12. Undir 2000 mótið er orðið nokkuð rótgróið hjá Taflfélagi Reykjavíkur eftir að því var fyrst ýtt úr vör fyrir ekki allmörgum árum. Yfir 2000 mótið er nýrra af nálinu en vonandi líka komið til að vera. Bæði mót hafa það markmið að skákmenn fái fleiri skákir við skákmenn á svipuðu reiki, eitthvað sem stór mót með svissnesku kerfi ná oft ekki að gera með góðu móti!

Í U2000 mótinu voru úrslit í fyrstu umferðinni nokkurn veginn eftir bókinni góðu. Þó með undantekningum. Mótið hófst á því að Pétur Jóhannesson tók örugga forystu þegar hann lagði skottu að velli. Hann fylgdi því eftir með góðri æfingu á Billidarbarnum í pool þar sem hann vann öruggan sigur á sjálfum sér!

Önnur óvænt úrslit urðu eftirfarandi…á öðru borði náði Ólafur Sindri Helgason (1465) að snúa á hinn þrautreynda Harald Baldursson (1808) með svörtu mönnunum. Katrín María Jónsdóttir (1186) náði góðu jafntefli gegn Roberto Osorio (1641) og hinn ungi Jón Louie Thoroddsen (1122) lagði Engilbert Viðar Eyþórsson (1612) að velli.

Sigur Ólafs Sindra var nokkuð góður á öðru borði. Vissulega ekki besti dagur Haralds en skákin nokkuð þétt af hálfu Ólafs með svart.

Yfir 2000 mótið fór af stað á sama tíma. Úrslit voru kannski ekki alveg eftir bókinni en ansi nálægt!

Varði var með einn heitasta skákmann Íslands, Bárð Örn Birkisson í hinum svokölluðu „köðlum“

Hér hefðu ýmsir leikir komið til greina sem hefðu haldið frumkvæði hvíts með jafnt á liði og svarta kónginn sem hálfgerðan strandaglóp á miðborðinu. Varði valdi að „redúsera primitíft“ eins og það var kallað í gamla daga. 16.De5? var ekki nógu góður og Bárður slapp í miðtafl þar sem hann var eiginlega sá sem gat teflt upp á vinning. Skákin varð löng en Varði náði að verjast peði undir í löngu endatafli.

Kjartan Maack lagði Stefán Bergsson að velli í annað skipti á innan við viku en þeir mættust líka í deildarkeppninni. Kjartan hékk á umframpeði eins og hann væri Bjarni Guðjónsson að skila boltanum eftir innkast andstæðingsins. Kannski ekki fallegasta strategían en dugði svo sannarlega til vinnings!

Andey Prudnikov og Halldór Halldórsson gerðu jafntefli með serbneskum blæ en svekkelsi umferðarinnar er klárlega tap Benedikts Briem með hvítu gegn Birni Hólm þar sem Benedikt fékk kennslustund í góðum riddara gegn lélegum biskup!

Skákir mótsins er hægt að nálgast hér að neðan á lichess. Ritstjórn Skak.is tók að sér að slá inn skákirnar í frístundum en ekki er hægt að lofa þessari þjónustu allt mótið!

Fyrirkomulag mótanna:

Undir 2000 mótið 

Þátttökurétt hafa allir þeir sem hafa minna en 2000 Elo-stig, þ.e. allt frá 0 að 1999 skákstigum. Tefldar eru sjö umferðir eftir svissneska kerfinu og er umhugsunartími 90 mínútur fyrir alla skákina auk 30 sekúndna sem bætast við eftir hvern leik. Einnig bætast við 15 mínútur á klukkuna eftir 40 leiki. Leyfðar eru tvær yfirsetur í umferðum 1-5 sem skal tilkynna skákstjóra við upphaf umferðarinnar á undan en 1/2 vinningur fæst fyrir yfirsetu. Teflt er einu sinni í viku, á miðvikudagskvöldum kl. 18.30, í Skákhöll félagsins að Faxafeni 12.

Mótið verður reiknað til alþjóðlegra skákstiga.

Sigurvegarar fyrri ára

Dagskrá
1. umferð: 18. október kl. 18.30
2. umferð: 25. október kl. 18.30
3. umferð: 1. nóvember kl. 18.30
4. umferð: 8. nóvember kl.18.30
5. umferð: 15. nóvember kl. 18.30
6. umferð: 22. nóvember kl. 18.30
7. umferð: 29. nóvember kl. 18.30

Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað meira en 30 mínútum eftir upphaf umferðar.

Tímamörk: 90 mín á alla skákina + 30 sek viðbót eftir hvern leik. 15 mínútur bætast við eftir 40 leiki.

Verðlaun: 1. sæti kr. 35.000, 2. sæti kr. 25.000, 3. sæti kr. 10.000. Hort-kerfi gildir.

Röð mótsstiga (tiebreaks):  1. Buchholz (-1) 2. Buchholz 3. Innbyrðis viðureign 4. Fleiri sigrar

Þátttökugjöld: 18 ára og eldri kr. 6.000, kr. 4.000 fyrir félagsmenn í TR. 17 ára og yngri kr. 3.000, frítt fyrir félagsmenn í TR.

Skákstjórn: Jon Olav Fivelstad verður aðaldómari.

Fyrirspurnir: taflfelag@taflfelag.is

Birnukaffi verður opið!

Yfir 2000 mótið 

Nákvæmlega sama fyrirkomulag nema fyrir skákmenn með 2000 stig og meira: Sama dagsrká, sömu tímamörk, sömu verðlaun, sömu mótsstig og sömu þátttökugjöld.

 

 

 

- Auglýsing -