Íslensku strákarnir voru taplausir í fjórðu umferð á HM í Egyptalandi. Josef gerði jafntefli í sinni skák en Birkir náði í góðan sigur. Báðir mættu þeir rússneskum andstæðingum.
HM ungmenna í flokkum U12, U10 og U8 fer fram þessa dagana í Egyptalandi. Ísland á tvo keppendur á mótinu. Josef Omarsson teflir í U12 flokknum og Birkir Hallmundarson í U10. Josef hafði 1 vinning eftir 3 skákir en hafði mætt tveimur af fjórum stigahæstu keppendunum! Birkir hafði 2 vinninga af 3.
Birkir mætti rússneskum andstæðingi, Lev Sivko (1160) sem teflir undir fána FIDE. Birkir virðist hafa unnið nokkuð auðveldan sigur en samkvæmt heimildum Skak.is var Birkir snemma orðinn drottningu yfir! Andstæðingur hans var með 2 vinninga af 3 þannig að Birkir hlýtur að hafa trikkað hann all verulega! Í flokki Birkis eru 115 keppendur og er Birkir númer 34 í stigaröðinni. Árangurinn hingað til því nokkuð góður!
Í 4. umferð í U12 mætti Josef líka rússneskum strák, Kiryl Babeikin (1420). Josef náði að vinna peð af andstæðingi sínum í byrjuninni sem hann tefldi mjög vel. Josef náði ekki að láta peðið telja og Rússinn náði á endanum að endurtaka stöðuna þrisvar og jafntefli varð niðurstaðan.
Í fimmtu umferðinni fær Birkir hvítt á rúmenskan andstæðing, Iustin-Nicolas Cazacu (1683). Josef fær svart á strák frá Marokkó, Malek Bensidi (1421).
Alls verða tefldar 11 umferðir í báðum flokkum en nú er enginn frídagur á mótinu sökum frestunar á fyrstu umferðinni.
Flokkur Jósefs á Chess-Results U12
Flokkur Birkis á Chess-results U10
















