Kristján Örn Elíasson hefur um nokkra mánaða skeið stjórnað, ákaflega vel heppnuðum, vikulegum útvarpsþáttum, á miðvikudögum, á Útvarpi Sögu – sem heita; Við skákborðið.
Í gær mættu Ólafur Ásgrímsson og Birna Halldórsdóttir í settið. Í kynningu um þáttinn segir:
Gestir Kristjáns Arnar í skákþættinum Við skákborðið að þessu sinni voru hjónin Ólafur Ásgrímsson, alþjóðlegur skákdómari og fyrrverandi bankastarfsmaður og Birna Halldórsdóttir umsjónarmaður veitinga hjá Taflfélagi Reykjavíkur og fyrrverandi stuðningsfulltrúi hjá grunnskólum Reykjavíkur. Þau hafa bæði starfað í skákhreyfingunni í tugi ára, eru vinsæl og öllum þykir vænt um þau.
Þáttinn má nálgast á Spotify.
Eldri þætti má nálgast hér á Spotity.
- Auglýsing -
















