Fimmtudagsmót TR hófu nýlega göngu sína á ný Mótin eru vikuleg, rétt eins og þriðjudagsmótin. Mótin hefjast klukkan 19:30 á kvöldin og tefld er hraðskák með tímamörkunum 3+2 og tefldar eru 10 skákir. Mótin eru reiknuð til alþjóðlegra hraðskákstiga. Veitt verða verðlaun í mótunum fyrir sigurvegara hvers móts, og bestan árangur miðað við stig. Mótin eru öllum opin.
Uppfærð verðskrá frá og með september:
Sama verðskrá verður á þriðjudags- og fimmtudagsmót TR. Hún er svona:
- Félagsmenn TR 18 ára og eldri: 500kr.
- Félagsmenn TR 17 ára og yngri: Ókeypis
- Utanfélagsmenn: 1000kr.
- Utanfélagsmenn 17 ára og yngri: 500kr.
- Utanfélagsmenn: 10 skipta klippikort: 7500kr.
- Auglýsing -
















