Víkingaklúbburinn urðu sigurvegarar í fyrsta skipti í Atskákkeppni Taflfélaga eftir skemmtilegt mót í gær í Faxafeninu.
Skákdeild KR var óvænt með forystu eftir fyrsta daginn og keppni virtist ætla að verða mjög spennandi. Taflfélag Reykjavíkur og Víkingaklúbburinn voru jöfn með 24 vinninga að loknum 6 umferðum en þá settu Víkingar í fluggírinn. Flestar efstu sveitirnar höfðu teflt innbyrðis og Víkingar straujuðu síðustu umferðirnar og fengu 17,5 vinning af 18 sem voru í boði í þeim.

Víkingaklúbbuinn kom því í mark með 41,5 vinning og voru fjórum vinningum fyrir ofan Taflfélag Reykjavíkur sem voru einnig nokkuð öruggir í öðru sæti, fjórum vinningum á undan Fjölni og Breiðablik.

Fjölnismenn höfðu betur gegn Breiðablik á oddastigum og hrepptu bronsið.


Mótið var vel sótt og T.R. stóð vel að móthaldinu. Skemmtileg keppni sem er komin til að vera!
Mótið á Chess-Results
















