Níundu umferð HM ungmenna í skák í Montesilvano á Ítalíu lauk fyrr í dag.

12 Íslendingar taka þátt og eru þeir í eftirfarandi fimm flokkum:

Opinn flokkur U18
FM Aleksandr Domalchuk-Jonasson
Benedikt Briem
Benedikt Þórisson
Þorsteinn Jakob F Þorsteinsson

Opinn flokkur U16
Ingvar Wu Skarphéðinsson
Adam Omarsson

Stúlnkaflokkur U16
Iðunn Helgadóttir

Opinn flokkur U14
Mikael Bjarki Heiðarsson
Matthías Björgvin Kjartansson
Markús Orri Jóhannsson
Markús Orri Óskarsson

Stúlnkaflokkur U14
Guðrún Fanney Briem

Fararstjórar og þjálfarar í ferðinni eru þeir FT Björn Ívar Karlsson og Gauti Páll Jónsson.

Veðrið hefur verið með íslenskum hætti síðasta sólarhring í Montesilvano. Það hefur rignt látlaust og blásið af krafti. Hótelið liggur þétt upp við sjóinn og öldurnar brjóta á brimgörðunum af miklum krafti. Við skákstúderingar og undirbúning í morgun mátti láta hugann reika og ímynda sér að við værum öll um borð í skipti úti á miðju hafi. Veðrið fer þó ágætlega í mannskapinn og á meðan aðrar þjóðir vopna sig regnjökkum og regnhlífum þá látum við það berja á okkur og það fyllir okkur eldmóði.

Hér er sko enginn lobbý-dauði. Mynd: USV
Úrslit 9. umferðar

Opinn flokkur U18

FM Aleksandr Domalchuk-Jonasson hafði svart á indverska ungstirnið IM Ilamparthi. Sá er fæddur árið 2009 og varð heimsmeistari U14 í fyrra. Hann teflir sem sagt upp fyrir sig á mótinu í ár. Upp kom fjögurra riddara tafl og Ilamparthi lék 4. Be2 sem er frekar sjaldgæfur. Aleksandr jafnaði taflið nokkuð auðveldlega í byrjuninni og miðtaflið var hnifjafnt, þrátt fyrir að Aleksandr hefði tvö tvípeð. Hann hafði á móti pressu á f2-peð hvíts. Eftir uppskipti fékk Aleksandr hættulegt peð á f3 sem hann náði síðar að fylgja á eftir með peðameirihluta á kóngsvængnum. Enn einn seiglusigurinn hjá Aleksandr sem er eftir umferðina í hópi efstu manna.

Benedikt Briem hafði svart á FM Krallis frá Grikklandi. Upp kom katalónsk byrjun (hvern hefði grunað það?) og sá gríski fékk óþægilega pressu á a-línunni. Benedikt reyndi að sækja á kóngsvæng en hótanir hans þar voru ekki nægilega sterkar. Krallis náði að brjótast í gegn og vinna mann og þrátt fyrir tilraunir Benedikts var mótspilið ekki nægilegt og hann tapaði.

Benedikt Þórisson hafði svart gegn CM Yoo frá Bandaríkjunum. Upp kom Grunfelds-vörn og sá bandaríski stofnaði snemma til uppskipta á drottningum. Sá hefur líklegast lesið grein Guðmundar Sigurjónssonar um Listina að tefla leiðinlega. Benedikt hélt jöfnu tafli fram í endatafl þar sem Yoo hafði biskup og fimm peð gegn riddara og fimm peðum Benedikts. Vandinn var sá að peð Benedikts voru öll á hvítum reitum eins og biskup Yoo. Hann náði að setja Bendikt í leikþröng sem leiddi til taps okkar manns. Með bestu vörn hefði Benedikt átt að jafntefli en þurfti að feta einstigi sem byggði á nokkrum fallegum riddarahoppum.

Þorsteinn Jakob F Þorsteinsson hafði hvítt gegn Shogi meistaranum Chang frá Tævan. Sá hefur getið sér gott orð fyrir færni sína í kínversku skákinni Shogi, sem spiluð er á 9×9 borði, en er öllu óreyndari í því að færa viðartaflmenn frá hvítum reitum yfir á svarta. Þorsteinn Jakob fékk yfirburðartafl eftir byrjunina og skipti upp í hagstætt endatafl. Líklega hefði hann getað gert úti um Shogi-meistarann fyrr með kraftmeiri taflmennsku en mat endataflið rétt og Chang átti enga vörn gegn yfirvegaðri taflmennsku Þorsteins.

Veðrið hefur verið sveiflukennt á Ítalíu. Mynd: KB

Opinn flokkur U16

Ingvar Wu Skarphéðinsson hafði svart gegn tyrkneska skákmanninum FM Ince. Upp kom katalónsk byrjun sem varð að Tarrasch-vörn. Sá tyrkneski skásetti biskup sinn á b2 sem ætti ekki að valda svörtum miklum vandræðum. Ingvar fékk fína stöðu eftir byrjunina en fataðist flugið í miðtafli og tapaði eftir harða baráttu.

Adam Omarsson tefldi áhugaverða skák í uppskiptaafbrigði slavneskrar varnar (þarna er setning sem ég hélt ég myndi aldrei skrifa). Adam var með hvítt og Adrian Stenstrop Thorsen ruggaði ekki bátnum mikið. Adam sýndi dálitla sóknartilburði sem urðu svosem aldrei að miklu. Allt í einu tók Daninn upp á því að hrista all verulega í stöðunni og fórna léttum manni fyrir þrjú peð. Mögulega var Adam aðeins of sáttur með jafnteflið, þar sem hann gat eflaust beðið rólegur og reynt að vinna peðin og komast í endatafl með umframbiskup. Frípeð svarts voru ekki nægilega vígaleg til að búa til vinningstækifærir fyrir svartan. En hálfur punktur í hús. 

Stúlnkaflokkur U16

Iðunn Helgadóttir hafði hvítt gegn Sippola frá Finnlandi. Upp kom Colle-system sem Iðunn þekkir vel. Iðunn fór í mikla sókn á kóngsvæng en sú finnska varðist vel. Iðunn fékk nokkur tækifæri til þess að láta til skarar skríða, og uppskera vinningsstöðu, en leiðirnar útheimtu mikla útreikninga sem hún náði ekki að meta rétt. Eftir miklar flækjur stóð Sippola skyndilega uppi manni yfir og hafði sigur.

Opinn flokkur U14

Mikael Bjarki Heiðarsson hafði hvítt gegn Pollitt frá Kanada. Upp kom slavnesk vörn og Mikael Bjarki fór í uppskipta-afbrigðið. Hann hafði ívið betri stöðu og pressaði aðeins á þann kanadíska. Í miðtaflinu hóf svartur aðgerðir á kóngsvæng en Mikael pressaði á miðborðið. Sveiflaðist skákin nú fram og til baka og skipti nokkrum sinnum um eigendur. Sá kanadíski átti vinningsleið sem byggði á miklu ferðalagi svarta kóngsins á sama tíma og svartur hafði máthótanir. Mikael náði að bjarga sér út í stöðu sem var jafntefli en þá stöðu vildi Pollitt líka reyna að vinna og gaf þá okkar manni öll peðin sín á einu bretti. Um leið kom Mikael í veg fyrir máthótanirnar og hafði unnið endatafl sem hann sigldi örugglega í höfn. Mikael Bjarki átti þennan sigur inni!

Mikael Bjarki hefur unnið tvær í röð. Mynd: USV

Matthías Björgvin Kjartansson tefldi góða skák með hvítu gegn kóngsindverskri vörn. Eitthvað ruglaði Eeli Asikainen saman leikjaröðum og fór of snemma í beinar aðgerðir á miðborði. Þessar aðgerðir hefðu getað endað með tapaðri stöðu á svart, fyndi Matthías þvingaða leikjaröð sem krafðist nokkurs útreikning. Í staðinn kom upp jöfn en dýnamísk staða þar sem Matthías lék því miður illa af sér í tap. Erfitt tap en góð færi.

Markús Orri Jóhannsson hafði svart gegn Nýsjálendingnum Hernandez. Upp kom Petroffs-vörn og Markús Orri fékk trausta stöðu. Hvítur fór í aðgerðir á kóngsvæng og náði að veikja stöðu Markúsar örlítið. Með leiðinlegri leppun setti hann næga pressu á stöðuna svo eitthvað varð undan að láta. Markús kom engum vörnum við og varð að gefast upp.

Markús Orri Óskarsson lenti í skák mikilla uppskipta snemma tafls. Hann gat þó verið sáttur með það, því að í lokaðri stöðu hafði Markús, með svart, miklu meira rými á drottningarvæng. Að sjálfsögðu fór hann af stað í þungaflutninga á drottningarvængnum á meðan Seann Dubrovsky var eins og fiskur á þurru landi. Eftirleikurinn var auðveldur. Fínn sigur hjá Markúsi.

Þessi fiskur dvelur á kaffihúsi rétt austan við skákstaðinn. Það vakti athygli íslensku þjálfaranna hversu lítið fiskabúrið er og hversu mikill skortur er á hugrænni örvun í umhverfi fisksins. Svona hefur andstæðingi Markúsar Orra Óskarssonar sennilega liðið í dag.
Markús Orri tefldi vel útfærða skák í dag. Mynd: BÍK

Stúlnkaflokkur U14

Guðrún Fanney Briem tefldi traust með svörtu. Eftir ónákvæmni hjá Carolina Marin Garrido sem kostaði eitt lítið peð, fékk Guðrún Fanney efnivið sem dugði til sigurs. Andstæðingur Guðrúnar fann ei bestu varnarleiðina. Úrvinnsla Guðrúnar Fanneyjar var afar góð, og gaf hún engin færi á sér á sama tíma og hún þjarmaði að þeirri ítölsku þangað til sigurinn var í höfn.

Guðrún Fanney vann góðan sigur í dag
Pörun 10. umferðar

Aleksandr teflir á 3. borði á morgun gegn Ungverjanum FM Juhasz. Það verður spennandi að sjá hvort Aleksandr heldur áfram á sömu braut og í undanförnum skákum. Iðunn og Guðrún Fanney verða líka í beinni útsendingu á morgun.

Opinn U18
Opinn U16
Stúlkur U16
Opinn U14
Stúlkur U14
chess.com
chess24

Opinn flokkur U18 á chess-results
Opinn flokkur U16 á chess-results
Stúlknaflokkur U16 á chess-results
Opinn flokkur U14 á chess-results
Stúlknaflokkur U14 á chess-results

Heimasíða mótsins

- Auglýsing -