Landsliðsmaðurinn Hilmir Freyr Heimisson kom, sá og sigraði á Ungmennameistaramóti (U22) Íslands. Mótið var jafnframt meistaramót Skáskóla Íslands. Hilmir, sem nýlega vann sig inn í landslið Íslands á EM í Svartfjallalandi sýndi og sannaði á hvaða forsendum hann var valinn og kláraði mótið með fullu húsi, 6 vinninga úr 6 umferðum!
Hilmir kom inn í lokadaginn með fullt hús, 4 af 4. Hann tefldi fyrri skák lokadagsins gegn Gunnari Eirk. Hilmir hafði hvítt og nýtti sér rými og biskupaparið til fullnustu og skipti upp í unnið peðsendatafl.
Spennan fyrir lokaumferðina var því í raun lítil. Hilmir hefði getað tapað lokaskákinni og haft betur gegn Stephan Briem á oddastigum. Hilmir lét þó ekki til þess koma og kláraði lokaumferðina með stæl. Hilmir hafði svart gegn Benedikt Þórissyni í ítalska leiknum.
Benedikt framkvæmdi stöðulega mistök snemma tafls með axb3 sem Sam Shankland fordæmi í bók sinni. Hilmir fékk aðeins betra tafl með svart en aldrei neitt afgerandi. Hilmir viðurkenndi eftirá að hann hafi í raun fengið sína verstu/erfðustu stöðu í mótinu en honum tókst engu að síður að skapa nógu stór vandamál fyrir hvítan eftir skiptamunsfórn til að sigla vinningnum heim.
Sigurinn þýddi að Hilmir kom yfir endalínuna með fullt hús vinninga, framúrskarandi árangur!

Iðunn Helgadóttir fékk stúlknaverðlaun en hún hafði betur í baráttunni gegn Guðrúnu Fanney.

Hlutskarpastur í U1800 varð Mikael Bjarki Heiðarsson.

Efstur skákmanna í U2000 varð Ingvar Wu Skarphéðinsson.

Hilmir sem er orðinn landsliðsmaður er einnig kominn yfir tvítugt sem þýðir að hann er í raun ekki gildur meðlimur í Skákskólanum. Stephan Briem hlaut því nafnbótina Meistari Skákskólans þar sem hann er fæddur árið 2003.

Hilmir vinnur hinsvegar titilinn Ungmennameistari Íslands árið 2023 og ver titil sinn frá því í fyrra!
Einstaklingsúrslit má nálgast á chess-results (sjá tengil að neðan) og skákir lichess (sjá tengil að neðan)
- Skákir á lichess (með delay)
- Twitch streymi frá efsta borði
- Mótatilkynning og upplýsingar (verðlaun, dagskrá o.fl.)
- Mótið á Chess-Results















