Desemberþrenna Hilmis Freys

783
0
Á uppleið Hilmir Freyr alvarlegur í bragði rétt fyrir liðsfund á EM landsliða 2023 í Svartfjallalandi. — Ljósmynd/Helgi Ólafsson

Hilmir Freyr Heimisson sigraði örugglega á Íslandsmótinu í atskák sem lauk á Selfossi hinn 30. desember. Hilmir hlaut 8½ vinning af níu mögulegum. Vignir Vatnar Stefánsson varð jafn Helga Áss Grétarssyni með sjö vinninga í 2.-3. sæti en Vignir var með hagstæðari mótsstig og hreppti silfrið. Jóhanna Björg Jóhannsdóttir náði frábærum árangri, hlaut 6½ vinning í 4. sæti og hampaði með því Íslandsmeistaratitli kvenna í atskák. Teflt var eftir tímamörkunum 10:3 en keppendur voru 52 talsins.

Það voru frumkvöðlarnir Birkir Karl Sigurðsson og Leifur Þorsteinsson sem standa fyrir hlaðvarpinu Chess after dark sem skipulögðu mótshaldið, sem fram fór í gamla Landsbankahúsinu á Selfossi.

Eftir sigurinn beinist athyglin í auknum mæli að Hilmi Freyr sem tefldi í fyrsta sinn fyrir Íslands hönd á EM landsliða í nóvember sl. Þetta var þriðji mótasigur hans í desembermánuði. Tveimur dögum fyrr vann hann örugglega jólahraðskákmót TR og svo kom þessi sigur.

Þó að mót með styttri umhugsunartíma verði æ vinsælli þá verður hin alvöruþrungna „gamla kappskák“ áfram aðalmálið. Á sameinuðu Meistaramóti Skákskóla Íslands og Unglingameistaramóti Íslands u-22 dagana 14.-17. desember sl. var keppt um sæti í landsliðsflokki á Skákþingi Íslands, sex umferðir með tímamörkunum 90:30. Hilmir Freyr, sem fæddist árið 2001, hefur unnið þetta mót nokkrum sinnum en var ekki gjaldgengur í baráttunni um titilinn meistari Skákskóla Íslands því aldurstakmörkin í þeirri keppni miðast við 20 ára aldur. En hann vann allar skákir sínar í mótinu, hlaut sex vinninga af sex mögulegum og hélt unglingameistaratitlinum frá því í fyrra. Áður hafði hann unnið Meistaramót Skákskólans með fullu húsið árið 2017 og aftur 2018. Stephan Briem, sem tilheyrir hinum svokallaða U-25-hópi, varð í 2. sæti með fimm vinninga og er því meistari Skákskólans 2023. Í 3.-5. sæti komu Ingvar Wu Skarphéðinsson, Benedikt Þórisson og Adam Omarsson, allir með 3½ vinning. Iðunn Helgadóttir hlaut sérstök aukaverðlaun stúlkna.

Lítum á eftirfarandi viðureign úr lokaumferðinni:

MM Skákskóla Íslands/Unglingameistaramót Íslands 2023; 6. umferð:

Benedikt Þórisson – Hilmir Freyr Heimisson

Ítalskur leikur

1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bc4 Bc5 4. c3 Rf6 5. d3 d6 6. Rbd2 a5 7. h3 0-0 8. Rf1 Be6 9. Bb3 Bxb3 10. axb3 d5 11. De2 Dd6 12. Rg3 De6 13. Rg5 Dd7 14. 0-0 Bb6 15. Ha4!? Re7 16. Rh5

Þessi og síðasti leikur Benedikts virðast hafa truflað áætlanir Hilmis sem gat leikið 16. … Rxh5 17. Dxh5 h6 18. Rf3 f6 með góðri stöðu.

16. … Rg6? 17. Rxf6+ gxf6 18. Rf3 Had8 19. Rh2!

Besti leikurinn sem setur setur svartan í mikinn vanda.

19. … f5!? 20. exf5?!

Hann gat beðið með þessi uppskipti. Mun öflugara var 20. Bh6.

20. … Dxf5 21. Rg4 De6 22. Bh6

22. … f5!

Að láta skiptamun af hendi er besti möguleiki svarts. Staðan er þó áfram erfið.

23. Bxf8 Hxf8 24. Re3 c6 25. b4 Rf4 26. Df3 Rxd3 27. bxa5 Bd8 28. a6! bxa6 29. Hxa6 e4 30. Dg3+ Kh8 31. Rc2?

Tímahrak og þreyta var farin að hafa áhrif á taflmennsku Benedikts, sem fram að þessu hafði verið stórgóð. Best var 31. Ha8! með miklum flækjum.

31. … Hg8 32. Rd4 Dd7 33. De3 f4 34. De2 f3 35. Rxf3

35. … Hxg2+! 36. Kxg2 Rf4+

– og hvítur gafst upp.

Skákþættir Morgunblaðsins eru birtir á Skák.is u.þ.b. viku eftir að þeir birtast í Morgunblaðinu. Skákþáttur þessi birtist 6. janúar 2024. d

- Auglýsing -