Önnur umferð á Skákþingi Reykjavíkur kláraðist í gærkvöldi. Efstu keppendur komust að mestu klakklaust í gegnum umferðina en þó var eitthvað um óvænt úrslit þó ekki væru þau mörg.

Stigahæsti keppandinn, landsliðsmaðurinn og alþjóðlegi meistarinn Hilmir Freyr Heimisson (2376) virkaði einbeittur í sinni skák.  Jóhann Ragnarsson beitti Saemisch afbrigðinu gegn Nimzanum, Hilmir fór á peðaveiðar sem virkuðu vel. Jóhann fékk ekki nægar bætur og þegar kyrrð kom yfir stöðuna var svartur peði yfir með goða Benoni stöðu-týpu og hvítur mótspilslaus með veikan kóng. Ekki þurfti að spyrja að leikslokum.

Á öðru borði tefldi alþjóðlegi mestiarinn Dagur Ragnarsson af öryggi í hefðbundnu drottningarbragði með hvítu. Dagur hafði alltaf betra tafl og mjakaði sig smátt og smátt inn í svörtu stöðuna  Takið eftir hvernig hvíti biskupinn nýtur sín betur með öll hvítu peðin meira og minna á svörtum reitum. Þessi biskup réði svo úrsltium í lokin.

Bárður Örn Birkisson hefur farið mikin undanfarið á innlendum vettvangi. Hann hafði svart gegn Adam og fljótlega í miðtaflinu fór Bárður að fá stöðulega yfirburði og stöðutýpu sem hentar honum svo vel. Adam barðist vel en Bárður vann góðan sigur.

Björn Hólm Birkisson vann einnig nokkuð stílhreinan sigur. Þegar Emil náði ekki að hrókera og laga kóng sinn var stutt í endalokin.

Júlíus Friðjónsson hefur sterkan stöðulegan skákstíl. Líklegast var nóg fyrir Júlíus í þessari skák að sjá veikingu á c4 reitnum til að landa vinningnum.

Byrjunin fór eitthvað úrskeiðis hjá Kristjáni gegn Lenku og sókn Lenku var langt á undan.

Greinilegt að sýningarborðin höfðu góð áhrif á stigahærri skákmennina því fyrstu óvæntu úrslitin komu ekki fyrr en á 7. borði. Jóhann Jónsson gerði þar jafntefli við stigahærri nafna sinn, Jóhann Ingvason.  Á áttunda borði lagði svo Tjövi Schioth (1739) stigahærri andstæðing sinn Arnar Milutin Heiðarsson (2056) að velli.

Önnur úrslit voru meira og minna eftir bókinni. 12 skákmenn hafa enn fullt hús.

Nokkrar athyglisverðar viðureignir eru á dagskrá í 3. umferðinni á sunnudaginn.

Fleiri myndir (Una Strand)

- Auglýsing -