Það var bókstaflega allt eftir bókinni í fyrstu umferð Skákþings Reykjavíkur sem hófst í dag. Sá stigahærri vann gegn þeim stigalægri í öllum skákum. Mögulega vekur þetta upp spurningar hvort til greina kæmi einhvers konar „accelerated“ pörunar kerfi til að koma í veg fyrir skákir þar sem 6-700 stigum munar í hverjum tilviki, oft skákir sem lítið er upp úr að hafa fyrir báða aðila.
Gaman er að sjá titilhafa mætta til leiks og stigahæstur keppenda að þessu sinni er nýkrýndur Íslandsmeistari í atskák, Hilmir Freyr Heimisson. Helgi Ólafsson lék fyrsta leiknum á mótinu fyrir Hilmi gegn Unnari Ingvarssyni. Keppendur eru alls 59 á Skákþinginu að þessu sinni og titilhafarnir fjórir alls.

Hilmir vann nokkuð fumlausan sigur með hvítu mönnunum. Hilmir leyfði snemma drottningarkaup og treysti á yfirburði í rými til að þjarma að svörtum. Unnar missti af skemmtilegum tölvuleik eftir 31.Rd6??
Hér hefði 31…g5! verið skemmtilegur! Nú verður biskupinn á e5 ofaní þannig að hvítur á engar hættulega leiki með riddaranum og svartur hótar stöðulega að taka á e5 og „manúvera“ svo riddaranum sínum á g6 reitinn og herja á f4.
Eftir kaupin á d6 voru stöðuyfirburðir hvíts of miklir og Hilmir sigldi punktinum heim.
Alþjóðlegi meistarinn Dagur Ragnarsson er næst-stigahæstur keppenda. Hann mætti Sigurlaugu Friðþjófsdóttur á öðru borði. Dagur fékk fljótt gott rými og pressu á c-línunni og vann peð. Hann kláraði svo dæmið með nettri taktík.
21…Dxf2! 22.Kxf2 Rg4+ og eftirleikurinn varð auðveldur.
Eins og sagði urðu önnur úrslit eftir bókinni. Hér eru skákir á borðum 3-6: (ath. DGT villa í skák Bárðs í 15. leik þar sem Dxd7 var leikið, það leiðréttist eftir …He8 hjá svörtum sem er rétt staða)
Önnur umferð fer fram miðvikudaginn næstkomandi. Pörun liggur ekki fyrir að svo stöddu.
Fleiri myndir:

- Mótsfrétt með tímamörkum, verðlaunum, tiebreaks o.fl.
- Skákir á livecloud
- Skákir á lichess
- Mótið á chess-results














