Hannes Hlífar Stefánsson (2496) gerði jafntefli í dag með hvítu gegn IM Tao Pang (2430) frá Kína í 7. umferðinni í lokuðum GM flokki í Tékklandi. Mótið er hluti af Marienbad Open. Hannes er stigahæstur í lokuðum 10 manna flokki.
Hannes stýrði hvítu mönnunum í skák dagsins. Upp kom frönsk vörn, Winawer afbrigðið og beitti Hannes 4.Re2 afbrigðinu (ath. alls ekki 4.Rge2!!). Miðtaflið varð strategísk baráttan en Hannes hélt alltaf góðum sjó og var aldrei í vandræðum…hinsvegar náði hann ekki að skapa næg vandræði fyrir svartan til að ógna sigri. Jafntefli niðurstaðan.
Hannes hefur 3 vinninga af 7 mögulegum og mætir FIDE-meistaranum Christoph Natsidis (2324) í næst-síðustu umferðinni.
- Auglýsing -

















