Aðeins ein sigurskák kom í hús á Íslandsmót öldunga (65+) en 2. umferðin var tefld í kvöld. Þrír eru efstir og jafnir með 1,5 vinning að loknum tveimur umferðum.

Bragi og Björgvin skelltu sér á friðarpípu í mótteknu drottningarbragði og voru snöggir að því. Drottningarnar fóru af borðinu og jafntefli samið.

Öllu meiri barátta var hjá Kristján og Þór. Kristján reyndi að djöflast gegn Caro-kann vörn Þórs og fékk ágætis sóknarfæri og stóð betur. Þór varðist vel, eins og í gær, og fékk sjálfur möguleika en jafntefli var samið þegar staðan fór aðeins að róast.

Eina sigurskákin kom hjá Ögmundi með hvítt gegn Páli. Páll náði að veiða drottningu hvíts en hvítur fékk ágætis bætur með virka menn fyrir drottninguna. Fór svo að virkni hvítu mannanna varð yfirþyrmandi og Ögmundur vann liðtil baka og skákina.

Staðan:

Öldungarnir halda áfram á morgun klukkan 18:00 þegar 3.umferð fer fram. Hlé verður á flokknum á fimmtudag og föstudag þegar Íslandsmót 50+ fer fram í Faxafeninu!

 

- Auglýsing -