Hraðskákmót Reykjavíkur fór fram síðastliðið miðvikudagskvöld í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur. Mótið er iðullega haldið að loknu Skákþingi Reykjavíkur og verðlaun þar afhent til hlutskörpustu manna á Skákþinginu.
Dagur Ragnarsson tók við verðlaunum sem Skákmeistari Reykjavíkur og þeir Jóhann Ingvason (2. sætið) og Gauti Páll Jónsson (3. sæti) tóku einnig við sínum verðlaunum.

Enginn af þessum þremur komst þó á pall í hraðskákinni. Flestir bjuggust væntanlega við sigri ríkjandi Íslandsmeistara í hraðskák en Vignir Vatnar Stefánsson var einmitt mættur til leiks, á afmælisdegi sínum! Félagi Vignis úr U25 æfingahópi Skákskólans, Bárður Örn Birkisson ákvað hinsvegar að skemma partýið og hrifsaði efsta sætið með 7,5 vinning. Vignir kom í mark í öðru sæti með 7 vinninga. Þriðji varð svo David Kolka á stigum.

Sigurvegarar með verðlaun:

Fleiri myndir frá mótinu (Rúnar Sigurðsson)

- Mótið á Chess-Results
















