Sjöunda og síðasta umferð Íslandsmót kvenna hófst kl. 14 í dag. Olga þegar tryggt sér titilinn. Spurningin er hvort hún vinni mótið með fullu húsi. Lenka og Jóhanna tefla mikilvæga skák þar sem Lenka þarf að vinna til að ná silfrinu.
Ögmundur í lykilstöðu hjá öldungunum. Jafntefli dugar honum en tapi hann gætu orðið þrír efstir og jafnir.
Íslandsmót kvenna
Olga efsta með fullt hús eftir fjórar umferðir. Lenka með 3½ vinning og Jóhanna með 3 vinninga. Í umferð dagsins mætast.
- Olga (6) – Iðunn (3½)
- Lenka (4) – Jóhanna Björg (4½)
- Tinna Kristín (½) – Guðrún Fanney (2½)
- Veronika Steinunn (1) – Elsa María (2)
Íslandsmót öldunga (65+)
Ögmundi dugar jafntefli. Tapi hann fyrir Kristjáni Erni gæti orðið aukakeppni þriggja sem fram færi síðar.
- Ögmundur (3½) – Kristján Örn (1½)
- Björgvin (2½) – Þór (1½)
- Páll (½) – Bragi (2½)
Íslandsmót kvenna – áskorendaflokkur
Emilía Embla vann sigur á mótinu sem lauk fyrr í dag. Hildur Berglin og Sóley Kría enduðu í 2.-3. sæti. Meira um það í sérfrétt sem birt verður síðar.














