Áskorendamótið ætlar að verða háspenna lífshætta fyrir allan peninginn! Úrslit í 12. umferð gátu varla verið betri fyrir spennufíkla. Nepomiachtichi gerði jafntefli við Praggnanandhaa sem opnaði dyrnar fyrir Gukesh og Nakamura sem náðu báðir í sigur og jöfnuðu Nepo á toppnum. Til að toppa spennuna náði Caruana líka í sigur og er aðeins hálfum vinningi á eftir efstu mönnum og á eftir að mæta Nepomniachtchi með hvítu mönnunumn.

Nepomniachtchi mætti Praggnanandhaa með hvítu mönnunum og það gæti komið í bakið á honum að hafa ekki reynt að nýta þá betur. Pragga beitti franskri vörn í annað skiptið á mótinu og Nepo tók leiðinlega ákvörðun og drap á d5 í þriðja leik, valdi uppskiptaafbrigðið. Margir hafa hlotið makleg málagjöld sem hafa beitt þessu afbrigði með hvítt og fræg er skák Gurevich gegn Short þar sem Gurevich nægði jafntefli til að komast áfram á svæðamóti en sú strategía kom í bakið á honum.

Líklegast hefur hugmyndin hjá Nepo verið að ögra Praggnanandhaa með því að tefla svona leiðinlega og vonast til að Pragga myndi sprengja sig þar sem Pragga varð að vinna til að eiga einhverja möguleika. Þessi strategía virkaði að mörgu leiti í gær þegar Vidit sprengdi sig en á móti var þessi strategía frekar nær því að springa í andlitið á Nepo. Pragga var aldrei í vandræðum og fékk örlítið betra á köflum en kannski aldrei nóg til að baka einhver vandræði fyrir Nepo. Jafntefli varð niðurstaðan að lokum.

Jafnteflið hjá Nepo opnaði dyrnar fyrir Hikaru Nakamura. Nakamura hefur verið með læti í seinni hlutanum og hætti því ekkert í 12. umferðinni. Naka náði í sinn þriðja sigur í röð og fjórða sigur sinn í síðustu fimm skákum.

Gegn Firouzja kom upp uppskiptaafbrigðið í franskri vörn!! Ekki er vitað hvaða stuðul menn hefðu fengið á að tvær skákir á Áskorendamótinu í sömu umferð yrði tefldar í uppskiptaafbrigðinu í franskri vörn! Líklegast hefði verið hlegið að viðkomandi fyrir að óska eftir því. En þetta raungerðist bara!

Þrátt fyrir leiðinlega byrjun á pappír varð skák þeirra ansi hressandi! Nakamura fórnaði peði í byrjuninni en fékk betri liðsskiptan og opnar línur. Firouzja gaf tvo menn fyrir hrók en treysti á hættulegt peð á e2. Nakamura náði að halda peðinu í skefjum og stóð mun betur.

Nakamura missti í kjölfarið stjórn á stöðunni, Firouzja fann …Hd1 og í kjölfarið féll a-peðið hjá Naka. Howell sagði í útsendingu að Nakamura þyrfti að vinna skákina aftur en væri ekki í taphættu.

Þá fékk Firouzja eitthvað tímabundið tap á vöðvaminni og æðir bara fram með g-peðið 41…g5?? og allt í einu stóð Nakamura til vinnings aftur. Í þetta skiptið sleppti hann ekki tökunum!

Gukesh virtist staðráðinn í að tjalda öllu til gegn Abasov með svörtu. Svo staðráðinn að hann var tilbúinn að tefla nánast eins og fáráðlingur í byrjuninni til að fá vinningssénsa. Ivan Soklov vildi meina að svona taflmennska hefði leitt til þess í gamla daga að menn yrðu reknir úr skákklúbbnum! 4…h6?! gegn Nimzo hefur ekki náð miklum vinsældum í gegnum tíðina!

Riddarinn hjá Gukesh fór svo á h7 í 11. leik, „manúvering“ sem Kristján Örn hefur masterað á mótum hér heima!

Á einhverjum tímapunkti nær Gukesh að vinna peð og svo hreinlega þröngvar hann fram vinninginn, hann bara vildi þetta meira! Þessi vilji, barátta, einbeiting fær mann eiginlega til að halda smá með Indverjanum unga!

Til að toppa spennuna náði Caruana loks að kreysta fram vinning með þéttri taflmennsku gegn Vidit. Sá Caruana sem við eigum að þekkja!

Úrslit

Staðan

Staðan í kvennaflokki

13.umferðin er á laugardaginn en mótinu lýkur um helgina. Magnaðar viðureignir í 13. umferð en þar mætast Nepomniachitchi og Nakamura. Gukesh fær á meðan hvítt á Firouzja og leitar vafalítið hefnda fyrir eina tap sitt til þessa á mótinu!

  • Skákir/Úrslit/Staða á Lichess Opna | Kvenna
  • Skákir/Úrslit/Staða á Chess.com Opna | Kvenna

Ýmsar leiðir eru til að fylgjast með:

Ýmsar rásir bjóða upp á samantekt (recaps) og annað efni.

- Auglýsing -