Sólin skein bjart í þriðju umferðinni og því þurfti bókstaflega tjald til að keppendur fengju skjól í skáksalnum í Mosfellsbæ. Íslandsmótið í skák fer þessa dagana fram og lauk þriðju umferðinni einmitt í kvöld.

Vignir Vatnar Stefánsson vann mikilvægan sigur á Héðni Steingrímssyni og er nú með 2,5 vinning eins og þeir Hannes Hlífar Stefánsson og Helgi Áss Grétarsson en þeir gerðu báðir jafntefli með svörtu mönnunum í dag. Hilmir Freyr Heimisson missti af dauðafæri á að komast með þeim á toppinn en hann glutraði niður vinningsstöðu gegn Olgu Prudnykovu.

Skák Vignir og Héðins var með fyrstu skákunum til að klárast. Vignir hafði hvítt og beitti Catalan-afbrigðinu sem ætti svosem lítið að koma á óvart en leikur hans, 7.Ra3 kom hinsvegar Héðni greinilega á óvart og eyddi hann þónokkrum tíma strax í byrjuninni.

Snemma í miðtaflinu virtist Vignir taka smátt og smátt yfir. Aðgerðir svarts með …Da6 virtust ekki vænlegar og hvítur fékk greinilega betra tafl. Í erfiðri stöðu lék Héðinn svo af sér manni en taflið þá þegar orðið hartnær tapað.

Vignir fékk færi á að klára með „Fréttablaðsleik“ 25.Dxf6! og svartur gafst upp.

Hægt er að sjá Vigni fara yfir skákina ásamt Ingvari á 1:22:22 ca í streym umferðarinnar.

Aleksandr Domalchuk-Jonasson er búinn að ná sér á strik eftir tapið gegn Vigni í fyrstu umferð. Hann lagði Lenku að velli nokkuð auðveldlega. Sasha fór í „Plan-A“ eins og Simon Williams kallar Dd8-e8-h5, f4, Bh3, Rg4 o.s.frv. þar sem planið er einfaldlega mátsókn ef hvítur hrókar!  Málið er ekki alveg svo einfalt og hvítur á og má hróka stutt en Lenka var greinilega smeyk við þetta plan og langhrókaði. Svartur sýndi með kraftataflmennsku að lönghrókun var ekki góð hugmynd í stöðunni og Sasha fékk glimrandi sókn sem Lenka réð ekki við.

Hjörvar beitti London-kerfinu gegn Hannesi en Hannes skipti snemma upp á hvítreitabiskupum og tók broddinn úr sóknaraðgerðum hvíts. Í jöfnu drottningarlausu miðtafli endurtóku þeir stöðuna þrisvar sinnum en þessi endurtekning fór framhjá okkur í streyminu frá mótinu.

Fín úrslit fyrir Hannes með svörtu en Hjörvar þarf nú að fara að vinna fullt af skákum í röð til að blanda sér í baráttuna!

Skák Dags og Helga Áss fer varla í sögubækurnar. Stofnað var til hópkaupa í miðtaflinu og staðan of lokuð í endataflinu til að hægt væri að gera sér mat úr einhverju. Jafntefli því niðurstaðan. Helgi er eftir skákina efstur ásamt Hannesi og Vigni.

Bárður Örn er gæðaskákmaður á uppleið og alltaf ljóst að hann myndi ná í sína vinninga á þessu móti. Hann tefldi fína skák gegn Guðmundi, tefldi Glek-kerfið sem er róleg uppbygging sem hentar honum vel. Í miðtaflinu hafði hvítur biskupaparið gegn riddarapari og náði Bárður að setja pressu á Guðmund og hrifsa af honum peð.

Peðsvinningurinn kom sér vel í endataflinu þar sem Bárður tefldi nákvæmt og fann vinning þrátt fyrir vaska vörn hjá Guðmundi.

Síðasta skákin til að klárast var hjá Olgu og Hilmi. Hér var á ferðinni spennandi, skemmtileg og dýnamísk skák eins og kannski við var að búast enda báðir keppendur með skemmtilegan skákstíl. Miðtaflið var furðulegt þar sem menn beggja voru hálf bundnir niður. Hilmir hélt betur á spöðunum og fékk unnið endatafl.

Segja má að dæmið hafi snúist við frá því í gær, nú kom það í hlut Hilmis að glutra niður vinningsstöðu en hann glutraði henni þó ekki lengra en í jafntefli. Seigla hjá Olgu en dauðfæri sem Hilmir brennir af til að jafna efstu menn.

Úrslit

Staðan

Útsending 3. umferðar:

Mótið heldur áfram á morgun með 4. umferð sem hefst eins og allar klukkan 15:00. Engar beinar toppbaráttuskákir eru á morgun en margar athyglisverðar viðureignir. Skákir Grétarssonanna Helga og Hjörvars eru alltaf skemmtilegar en þeir mætast einmitt á morgun.

- Auglýsing -