Fjórða umferð Skákþings Íslands hefst kl. 15 í dag. Heldur betur fjörug og skemmtileg taflmennska í upphafi mótsins!

Stórmeistararnir Vignir Vatnar, Helgi Áss og Hannes Hlífar efstir með 2½ vinning. Aleksandr og Hilmir Freyr stutt undan með 2 vinninga. Ekki má vanmeta Héðin, Guðmund og Hjörvar Stein þrátt fyrir áföll í upphafi móts.

Fyrirfram er mesta spennan í kringum skákir Helga Áss og Hjörvars og Héðins og Hilmis.

Umferð dagsins:

  • Hannes Hlífar Stefánsson (2½) – Olga Prudnykova (1½)
  • Vignir Vatnar Stefánsson (2½) – Bárður Örn Birkisson (0)
  • Helgi Áss Grétarsson (2½) – Hjörvar Steinn Grétarsson (½)
  • Héðinn Steingrímsson (1½) – Hilmir Freyr Heimisson (2)
  • Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2) – Dagur Ragnarsson (1)
  • Guðmundur Kjartansson (1) – Lenka Ptácníková (0)

Umferðin hefst kl. 15. Bein lýsing Ingvars Þórs hefst um tveimur tímum síðar.

Tilvalið að kíkja á skákstað. Skáktilboð á veitingastaðnum og hægt að fylgjst með og spjalla um leið.

 

- Auglýsing -