Ekki þurfti að tjalda öllu til í fjórðu umferðinni þar sem sólin var ekki jafn skæð og í þriðju umferðinni. Efstu menn eftir fjóra umferðir fara þó það hratt af stað að varla sér til sólar hjá hinum! Þeir Vignir Vatnar Stefánsson, Hannes Hlífar Stefánsson og Helgi Áss Grétarsson héldu allir uppteknu hætti og leiða mótið með 3,5 vinning að loknum 4 umferðum.

Hilmir Freyr Heimisson heldur sig í seilingarfjarlægð frá efstu mönnum. Hann vann glimrandi sigur á Héðni Steingrímssyni með svörtu mönnunum í umferðinni. Tefld var slavnesk vörn og Héðinn fór á peðaveiðar og lagði upp með að halda umframpeðinu. Hilmir fékk góða bætur fyrir peðið.

Kóngsvængur Héðins var svolítið bundinn niður og erfitt að koma mönnunum út og kóngnum í skjól. Þrátt fyrir uppskipti hélst pressan hjá svörtum og svo fór að lokum að frumkvæði Hilmis kláraði dæmið og hvíta staðan hrundi. Flott skák hjá Hilmi og algjörlegalega í hans stíl, frumkvæði og dýnamík.

Hilmir eins og áður sagði hálfum vinningi frá efstu mönnum en annað tap Héðins í röð skerðir sigurmöguleika hans töluvert!

Guðmundur Kjartansson hefur ekki byrjað nægilega sterkt á mótinu í ár til að vera líklegur til atlögu að fjórða Íslandsmeistaratitli sínum. Gummi slapp með skrekkinn í skák dagsins. Lenka tefldi vel og 21…b5! var sterkur leikur. Eftir kröftuga leiki vann Lenka peð þvingað.

27…Rxf2 og hvítur tapar peði þar sem Rd3+ vofir yfir og 28.Hxc5?? dugar ekki vegna 28…Rh3+

Lenka var sælupeði yfir en hleypti Gumma í mótspil og tók þráleik í stað þess að tefla áfram. Svartur hefði líklega getað teflt nokkuð áhættulítið áfram með …a4. Lenka virtist hinsvegar sátt að komast á blað eftir strembna byrjun en taflmennskan í þessari skák ætti að gefa henni byr undir báða vængi.

Vignir hélt áfram að tefla af öryggi og hann yfirspilaði Bárð í miðtaflinu þrátt fyrir fína spretti hjá Bárði. Vignir byrjar titilvörnina af krafti og er til alls líklegur.

Helgi Áss Grétarsson heldur dampi og er efstur. Hann tefldi erfiða skák gegn Hjörvari eftirnafnsnafna sínum þar sem Hjörvar tefldi af krafti og virtist vera að yfirspila Helga á kóngsvængnum.

23…g3!? var skemmtilegur leikur 24.hxg3 Bxg3 var þvingað en nú má hvítur ekki taka á g3. Helgi hélt hinsvegar velli þó staðan væri erfið. Hjörvar missti af sterkum leikjum til að halda sókninni gangandi og Helgi náði einhvern veginn að raða mönnunum þannig að hann trikkaði drottninguna af Hjörvari í tímahraki.

Helgi Áss efstur eins og áður sagði en Hjörvar með eindæmum senheppinn og aðeins með hálfan vinning þrátt fyrir fína taflmennsku megnið af tímanum.

Hannes Hlífar virðist í fínu formi. Hann náði í fínan sigur gegn Olgu sem beitti …e5 snemma í Sikileyjarvörn, svipað og Hikaru gerði gegn Caruana á Áskorendamótinu. Þessi leið þótti áður vafasöm en tölvurnar virðast telja afbrigðið teflanlegt í dag. Hannes fékk betra miðtafl en Olga tefldi af krafti eins og henar er von og vísa.

Kraftataflmennskan hefði gert Hannesi lífið leitt ef Olga hefði leikið 33…Bxe4 þar sem hvítur þarf enn að hafa töluvert fyrir sigrinum.

Þess í stað kom 33…Hc3? og Hannes vann skömmu síðar.

Skák Aleskandrs og Dags varð ein sú athyglisverðasta og skemmtilegasta í umferðinni. Hún var einnig sú lengsta! Dagur fórnaði skiptamun á stöðulegan hátt og fékk glimrandi spil fyrir fórnina. Skákin var mjög strategískt flókin og möguleikar leyndust fyrir báða aðila en þó líklega betri möguleikar lengst af hjá Degi. Á endanum varð jafntefli þó niðurstaðan.

Úrslit

Staðan

Mótið hefur skilgreinst nokkuð eftir fjórar umferðir. Fimm skákmenn hafa dregið sig úr hópnum og verða að teljast líklegastir á þessu stigi mótsins.

Pörun 5. umferðar

Hilmir og Hannes mætast í toppslag á meðan Vignir og Helgi Áss mæta báðir kvennalandsliðskonum með svörtu.

5. umferð hefst klukkan 15:00 eins og venjulega.

- Auglýsing -