Ólympíuskákmótið í Batumi – pistill 7. umferðar

1572
0
Íslensku liðin komust þolanlega frá 7. umferð Ólympíuskákmótsins í Batumi. Karlarnir í opna flokknum unnu sigur á stigalægra liði Tajikistan en kvennaliðið laut í lægra haldi fyrir Turkmenistan.

 

Opinn flokkur:

Hannes Hlífar setti tóninn með sinni annarri sigurskák í röð með hvítu mönnunum í spænska leiknum. Hannes fékk þægilega stöðu úr byrjuninni.

Hannes er hér kominn með þægilega betri stöðu og d-peðið hættulegt. Hannes fórnar hér manni tímabundið nokkuð smekklega með 29.Rc4 þess skal þó getið að hvítur heldur betra og þægilegra tafli án vandkvæða með 29.Had1 Rxc4 30.Hxe6! Rb2 31.De2 fxe6 32.Dxe6+ Kg7 33.Dd5

Skemmtilegt þema, riddarinn á b2 fellur þegar hvítum sýnist og hann týnir upp nokkur peð á meðan.

33…Ha7 34.He1 Hd7 35.He6 kemur í veg fyrir …Df6 til að bera fyrir skákina, mjög flott taflmennska hjá Hannesi. 35…Dh4 36.De5+ Kf7 37.g3! Millileikur 37…Dd8 38.Dd5 liggur ennþá ekkert á! 38…Kg7 39.Dxc5 Df8 40.De5 Kh6 og Hannes vann örugglega

Helgi Áss Grétarsson stimplaði sig inn á mótið með mikilvægum sigri. Eftir mikla miðtaflsbaráttu átti andstæðingur helga möguleika á hættulegri stungu.

Hér hefði hvítur staðið til vinnings eftir 23.Rxe6!! Svarta staðan ræður ekki við þennan leik. 23…Rxe6 er svarað með 24.Rxd5+ og vinnur drottningu og 23…Kxe6 24.Hg1 er yfirburðastaða á hvítan. Þess í stað lék hvítur 23.Hxh8? í tímahraki og Helgi hafi betur í baráttunni í framhaldinu. Mikilvæg skák til að koma Helga í gang!

Jóhann tapaði fyrir Amunatov á fyrsta borði. Svörtu mennirnir urðu hlutskipti Jóhanns enn eina ferðina en stundum lenda litirnir svona í liðakeppnum.  Jóhann fékk fína stöðu úr byrjuninni og líklegast hefði …exf4 og …c6 verið betri leið en …exd4. Erfitt var í raun í framhaldinu að finna klár mistök hjá Jóhanni og Amunatov verður bara að fá prik fyrir góða skák.

Það kom því í hluta Guðmundar Kjartanssonar að tryggja sigur í viðureigninni. Guðmundur stóð allan tímann eitthvað betur og sneri á andstæðing sinn og stóð til vinnings í þessari stöðu

Hér gat Guðmundur leikið 40.Hc7 og hinn hrókurinn á c6 í framhaldinu er tjaldið fyrir svartan. Leikurinn sem Guðmundur lék 40.Hc6 dugir einnig til vinnings. 40…Kf7 41.Dg6+ var rétt framhald en í stað 42.Bc5 var 42.Hf6! vinningur á hvítan þar sem svarta drottningin fellur í flestum afbrigðum. Guðmundur var í raun enn með betra þrátt fyrir þetta en eftir 42…Re8 og 43.Dh6+ voru engir sénsar teknir og jafntefli samið til þess að tryggja sigur í viðureigninni.

Skákir karlanna eru hér að neðan, hægt er að velja skák í flettiglugganum (…)

Kvennaflokkur:

Guðlaug Þorsteinsdóttir vann eina sigur kvennaliðsins með framúrskarandi vel tefldu endatafli sem var löðrandi í skemmtilegum þemum.

Fyrst þurfti Guðlaug að passa vel upp á kónginn

Eftir 35…Hd3+ 36.g3 Hd2 37.Bg1 kemur hvítur í veg fyrir öll mát þótt menn séu tímabundið passífir. Í kjölfarið vannst a-peðið.

Hér stýrði Guðlaug skákinni í endatafl með 47.Bxg7! og riddarinn ræður ekki við a-peðið í kjölfarið. Mikilvægt peðsendataflsþema þar sem f- og h- peðin með línu á milli vinna svo svarta kónginn var svo lokaniðurstaðan.

Aðrar skákir féllu ekki með kvennaliðinu og þær urðu að sætta sig við 1-3 tap án Lenku sem hefur ekki getað teflt eftir að hafa lent í virkilega slæmri tognun. Vonir standa til að hægt verði að útvega hjólastól til að koma henni á skákstað í einhverjum af næstu umferðum.

Skákir úr kvennaflokki eru hér að neðan, hægt er að velja skák í flettiglugganum (…)

Gangur mótsins

Azerar gerðu jafntefli við Pólverja á öllum borðum en þessar sveitir leiddu mótið fyrir umferðina. Bandaríkjamenn náðu því í skottið á þeim með sigri á Króötum. Þessar þrjár sveitir hafa 13 stig og Armenar hafa 12 stig. Mjög margar sveitir hafa 11 stig og margt getur ennþá gerst þó auðveldast sé að veðja á Bandaríkjamenn.

Armenska kvennasveitin er mjög óvænt efst eftir að hafa lagt þá bandarísku í 7. umferðinni. Mikill og stór pakki kemur í humátt og spennan verður einnig mikil kvennamegin.

8. umferð

Áttunda umferðin ætti að vera farsæl fyrir bæði lið. Kvennasveit fær Eþíópíu og karlasveitin fær einnig mun stigalægri andstæðing í Kyrgystan. Vonandi er endaspretturinn hafinn hjá báðum liðum!

Skák dagins:

Það er ekki nóg að vera stórmeistari! Alsírski stórmeistarinn Aimen Rizouk var kominn með tapað tafl eftir aðeins 7 leiki gegn spænskum kollega sínum, sjón er sögu ríkari!

Heyrst hefur:

  • Að Ingvar fréttarritari hafa nánast ekkert sofið útaf biluðum glugga. Mjög hvasst var í gær og bilaður gluggi Ingvars opnaðist síendurtekið alla nóttina með miklum látum!
  • Að Nóni vilji fá að vita hverja Ísland styður í FIDE kosningum. Þögnin er víst ærandi!!
  • Að Kiddi hafi verið að dæma einhvern super-match í gær!
  • Að Luis Galego eftir að hafa verið tekinn í anti-cheating test eftir að hafa tapað fyrir blindum skákmanni hafi í hæðnistón sagt „go check the blind guy!!“
  • Martin Walker sem teflir fyrir S-Kóreu og vann Helga Áss er með 5.5 vinning af 7!

Áframhaldandi umfjöllun verður hér á Skak.is

 

Beinar útsendingar á Skak.is: Opinn flokkur | Kvennaflokkur

Viðureignir dagsins á Chess24: Opinn flokkur | Kvennaflokkur

Mótið á chess-results 7.umferð: Opinn flokkur | Kvennaflokkur

Myndapakki: Íslenskir skákmenn á Facebook

 

Hlaðvarp 7. umferð: Ólympíuhlaðvarpið

- Auglýsing -