Vignir Vatnar Stefánsson tapaði sinni fyrstu skák í České Budějovice í Tékklandi þar sem skákhátíð fer nú fram og Vignir teflir ásamt íslensku stórmeisturunum Hannesi Hlífari Stefánssyni og Helga Áss Grétarssyni . Helgi og Hannes eru saman í flokki (A) og svo er Vignir einn í hinum flokknum (B).
Vignir hafði hvítt í 5. umferðinni og mætti öðrum Austurríkismanni, Laurenz Borrmann (2378). Vignir yfirspilaði Austurríkismanninn í byrjuninni/miðtaflinu fékk hættulega sókn og vann peð. Má eiginlega segja að tapið sé óskiljanlegt á svipaðan hátt og tapið hjá Helga Áss í 4. umferð.
Vignir var peði yfir en eins og Helgi missir hann svo peðið til baka en staðan er ennþá jafntefli þangað til alveg í lokin.
Hér lek Vignir 49.c7?? sem tapar. Hvítur gat enn bjargað sér með hugmyndinni að bíða með 49.Bf2 og fara svo með kónginn á c8-d7. Svartur vinnur biskupinn fyrir f-peðið en hvítur nær að leika Ke6 með tempó og kemst í peðin á kóngsvæng tímanlega.
Svekkjandi tap!
Helgi Áss hefur verið seinheppinn í síðustu umferðum og tapaði þriðju skák sinni í röð í dag. Hann hafði svart gegn pólskum IM Alex Kaczmarek (2374). Helgi fékk fínt tafl en missti líklega af tækifæri að fá slagkraft í stöðuna með 20…fxe5 í stað 20…f5. Hvítur tefldi vel og þjarmaði jafnt og þétt að svörtu stöðunni og í lokin var svarti kóngurinn kominn í mátnet.
Hannes var sá eini sem náði punkti í dag en hann gerði jafntefli með hvítu gegn Tomas Kraus (2489) tékkneskum alþjóðlegum meistara. Úr varð tíðindalítil skák í drottningarbragði þar sem jafntefli var samið í miðtaflinu.

Vignir er enn í fínum málum í B-grúpunni með 4 vinninga af 5 mögulegum. Í A-grúppunni er Hannes nú með 2 vinninga af 5 en Helgi hefur 1 vinning af 5.
Sjötta umferð hefst klukkan 14:00 á morgun og hægt að fylgjast með á lichess (sjá tengil að neðan) með því að velja rétta umferð og svo skipta milli A og B flokkanna eftir þörfum!















