Íslenska liðið fer vel af stað á HM öldungasveita sem hófst í gær í Krakow í Póllandi. Íslenska sveitin á mótinu er sterk sem endranær. Liðið skipa í borðaröð:

  1. Helgi Ólafsson
  2. Jóhann Hjartarson
  3. Margeir Pétursson
  4. Jón L. Árnason
  5. Þröstur Þórhallsson

Íslenka liðið teflir í flokki 50+ þar sem tefldar verða 9 umferðir. Alls taka 31 sveit þátt í 50+ flokknum og er Ísland (2439) númer þrjú í styrkleikaröð á eftir feykisterkri sveit Bandaríkjamanna (2480) og Evrópumeistara Englendinga (2469). Skammt á hæla Íslendinga kemur sveit Ítala (2431) sem er svipuð að stigum og sú íslenska og hefur oft reynst okkur erfið. Þessar fjórar sveitir eiga að vera í nokkrum sérflokki á þessu móti!

Eftir góðan og öruggan 4-0 sigur í fyrstu umferðinni var komið að sveit frá Þýskalandi

Þýska sveitin frá Lubeck er númer 12 í styrkleikaröðinni en okkar menn klárlega sterkari á pappírnum. Margeir hvíldi í þessari viðureign.

Helgi hafði svart á efsta borði. Líkt og í fyrstu umferðinni tefldi hann öruggt og af ábyrgð og jafnaði taflið auðveldlega. Sá þýski virtist sáttur við að ryksuga alla kallana af borðinu og tefldi augljóslega ekki upp á neitt. Helgi fékk betra rými í endataflinu en því miður vantaði meira ójafnvægi í peðastöðuna til að Helgi gæti nýtt sér það til að tefla upp á vinning. Jafntefli því niðurstaðan og Helgi aldrei í neinni hættu.

Jóhann hafði hvítt á öðru borði og andstæðingur hans beitti kóngsindverskri vörn. Sókn svarts á kóngsvæng komst aldrei af stað og náði Jóhann að yfirspila andstæðing sinn í „pósanum“ og nýtti sér opna b-línu til að komast inn í svörtu stöðuna og að lokum vinna lið og skákina.

Jón L. ásamt Gunnari forseta (mynd: M.Livshitz)

Andstæðingur Jóns L. á þriðja borði virtist ætla að nota svipaða taktík og Dirk á fyrsta borði og reyna að ryksuga allt af borðinu. Passíf taflmennska hvíts (Bb1, Df1 og slíkir leikir) gáfu Jóni frekar þægilega betra tafl úr mótteknu drottningarbragði. Ólíkt skákinni á fyrsta borði var aðeins meira ójafnvægi í peðastöðunni og Jón L. náði svo að vinna peð og hvítur gafst upp þegar peð númer tvö féll í valinn.

Þröstur hafði hvítt í sikileyjarvörn og náði í miðtaflinu að koma sterkum riddara á d5 reitinn og eftir að það náðist var í raun lítið eftir og Þröstur kláraði dæmið með einfaldri taktík.

Annar stórsigur og það eru aðeins íslenska sveitin og sú enska sem eru með hálfan vinning niður. Bandaríkjamenn unnu „aðeins“ 2,5-1,5 í dag gegn kanadískri sveit.

Englendingar búa að því að hafa klárlega besta skákmanninn á mótinu í Michael Adams!

Andstæðingar íslenska liðsins verða alltaf sterkari og sterkari og nú mjökum við okkur upp töfluna í 3. umferð og mætum ísraelsku sveitinni sem er númer 9 í styrkleikaröð með 2212 meðalstig.

- Auglýsing -