Íslenski landsliðsmaðurinn Hilmir Freyr Heimisson (2392) tekur nú þátt í sterkri lokaði GM-grúppu í Köge í Danmörku. Ört er teflt og fyrstu þrír dagarnir voru allir tvöfaldir. Í gær og í dag var einföld umferð og var áttunda umferð tefld í dag.
Í umferðinni hafði Hilmir svart gegn spænskum FIDE meistara. Byrjanataflmennskan misheppnaðist eitthvað hjá Hilmi og hvítur fékk alltof sterkt miðborð sem gaf honum pláss til að hefja hættulegar aðgerðir á kóngsvæng sem kostuðu svo fljótlega lið hjá Hilmi.
Eftir þetta tap hefur Hilmir því 4 vinninga af 8 mögulegum. Lokaumferðin á morgun!
- Auglýsing -


















