Íslandsmeistarinn Helgi Áss Grétarsson gerði jafntefli í sjöundu umferð á opnu móti í Slóvakíu eftir langa og stranga baráttu. Helgi hefur nú 4 vinninga af 7 mögulegum.
Helgi mætti enn einum FIDE-meistaranum, nú Simon Rybka (2327) frá Slóvakíu. Helgi beitti kóngsindverksri árás og í stað þess að fara í kóngssókn tók Helgi á móti aðgerðum andstæðings síns á drottningarvæng og endaði á að hafa af honum peð.
Fyrir peðið hafði Rybka þó góðar bætur, blokkeringu og mikla pressu á d4 peð Helga. Við tók langur kafli þar sem Helgi leitaði og leitaði að leið til að láta umframpeðið telja. Á nokkrum stöðum kom til greina að fórna skiptamun á f5 reitnum en Helgi hefur ekki talið það vænlegt og sættist á jafnteflið.
Helgi hefur því 4 vinninga af 7 og taflmennskan heldur áfram á morgun þar sem Helgi mætir áttunda FIDE-meistaranum í röð!

















