
Íslandsmeistarinn Helgi Áss Grétarsson vann flottan sigur og tefldi af fítonskrafti í 8. umferð á opnu móti í Slóvakíu. Helgi mætti indverskum FIDE meistara og minnti vel á sig!
Helgi hafði hvítt gegn Anees Mohamed (2306) og upp kom drottningarpeðsbyrjun. Í miðtaflinu fór svartur í hættulegt peðaát og eftir það steig Helgi svo sannarlega á bensíngjöfina. Hann lék hverjum kraftaleiknum á fætur öðrum og gjörsamlega valtaði yfir andstæðing sinn.
Helgi hefur því 5 vinninga af 8 og lokaumferðin fer fram á morgun.
- Auglýsing -















