Alþjóðlegi meistarinn Björn Þorfinnsson er genginn til liðs við Taflfélag Vestmanneyja og bætist þar við glæsta sögu hvalreka til eyjanna. Fyrst var það Keikó, svo blessaðir mjaldarnir og nú Björn!
Björn hefur um árabil verið í hópi sterkustu skákmanna landsins. Hann var útnefndur alþjóðlegur meistari árið 2009 og hefur náð tveimur áföngum að stórmeistaratitli. Þann fyrri á 100 ára afmælismóti Skákþings Íslands árið 2013 og þann síðari á alþjóðlegu móti í Bunratty á Írlandi árið 2015. Á því móti náði Björn besta árangri sínum hingað til en frammistaðan hljóði upp á 2689 stig (e. rating performance). Þá hefur Björn einu sinni teflt á Ólympíumóti fyrir Íslands hönd, árið 2010 í Khanty-Mansiysk, auk þess sem hann hefur þrisvar sinnum átt sæti í landsliði Íslands á Evrópumóti landsliða.
Meðal annarra helstu afreka Björns er Ólympíugull með U-16 ára landsliði Íslands, Íslandsmeistaratitill í atskák árið 2008 (þar sem hann lagði bróður sinn Braga í sjónvarpseinvígi) og þrír sigrar á Skákþingi Reykjavíkur (2003, 2011 og 2012) auk fjölda annarra sigra á innlendum mótum.
Björn er boðinn velkominn í TV og verður hann án efa drjúgur í deildarkeppninni næsta vetur. Björn er auk þess með skemmtilegri mönnum og þegar sá er gállinn á honum getur hann reitt af sér brandarana!
















