Í gær stóð FIDE fyrir heimsmetstilraun sem virðist hafa tekist. Aldrei hafa fleiri skákmenn teflt samdægurs í heiminum. A.m.k. 5,4 milljónir skákir voru tefldar í gær! Þar með talið á Ingólfstorgi, Húsavík, Akureyri, Taflfélagi Reykjavíkur og KR-heimilinu!
Mótið á Ingólfstorgi var hápunktur gærdagsins á Íslandi og eini skákviðburðurinn í heiminum þar sem maður sem hefur gengt forsetaembætti FIDE var viðstaddur! Friðrik Ólafsson, forseti FIDE, lék fyrsta leikinn fyrir Björn Þorfinnsson gegn Júlíusi Björnssyni.
Svo fór að Arnar Gunnarsson vann sannfærandi sigur á mótinu. Arnar hlaut 8½ vinning í 9 skákum, leyfði aðeins jafntefli gegn Róberti Lagerman.
Björn Þorfinnsson varð annar með 7 vinninga. Tapaði tveimur skákum. Beitti Vodafone-gambítnum (geymdi símann fyrir son sinn – mamman hringdi til að athuga hvernig Birni gengi) gegn Arnari sem er ekki vænlegt til árangurs í skák.
Þröstur Þórhallsson, Dagur Ragnarsson, Bragi Þorfinnsson, Andri Áss Grétarson og Olga Prudnykova urðu í 3.-6. sæti með 6 vinninga. Þröstur hlaut bronsið eftir stigaútreikng.
33 keppendur tóku þátt í mótinu sem teflt var í frábæru veðri. Reykjavíkurborg fær þakkir fyrir lánið á keppnisstað.



















