Íslensku landsliðsmennirnir eru iðnir við kolann í sumar og Hilmir Freyr Heimisson hóf leik á opnu móti í Danmörku með góðum sigri. OBRO international mótið fer fram í Kaupmannahöfn frá 22-28. júli og verða tveir tvöfaldir keppnisdagar, svipað og á Reykjavíkurskákmótinu.
Alls eru 54 keppendur sem tefla 9 umferðir og er Hilmir númer 8 í stigaröðinni. Fimm stórmeistarar eru skráðir til leiks.
Í fyrstu umferðinni mætti Hilmir þýskum skákmanni, Max Weidenhoefer (2186). Hilmir hafði svart og tefldi sikileyjarvörn og náði að grafa undan svörtu reitunum í hvítu stöðunni og þá sérstaklega með framrás a-peðsins. Hvíta staðan opnaðist smátt og smátt og Hilmir náði algjörum yfirburðum á svörtu reitunum og þvingaði andstæðing sinn til uppgjafar.
Framundan er tvöfaldur dagur hjá Hilmi en hann mætir Svíanum Alexander Nord (2212) i 2. umferð.
















