Landsliðskonan Lenka Ptacnikova stóð í ströngu í dag í Tékklandi á Summer Prague Open ásamt sonum sínum þeim Adam Omarssyni og Josef Omarssyni. Teflt var tvöföld umferð og var dagurinn svolítið upp og niður hjá öllum.
Í fyrri umferð dagsins, þeirri þriðju voru Adam og Lenka í beinni útsendingu. Adam hafði byrjað best af Íslendingunum og hafði 2 vinninga eftir umferðirnar tvær. Hann mætti þýska FIDE meistaranum Pascal Neukirchner (2261) á 12. borði og stýrði svörtu mönnunum.
Hvítur fékk smá „klípu“ úr byrjuninni en fann ekki rétt framhaldið og eftir 18.f3?! var svartur í ágætis málum. Þjóðverjinn virðist hafa misst þráðinn því hann býður jafntefli í 20. leik með 20.Rb4? en þar gerir Adam mistök og samþykkir boðið, líklegast horft of mikið í stig andstæðingsins.
Málið er nefnilega að svartur vinnur lið þvingað í lokastöðunni (ef lokastaðan er rétt!). 20…a5 og svo …b5 í kjölfarið þvingar drottninguna á a3 og þá fylgir Rd4-c2-e3 með gaflli.
Engu að síður fín úrslit sem Adam hefði örugglega tekið fyrirfram, sérstaklega með svörtu.
Lenka var einnig í beinni gegn úkraínska skákmanninum Mikhola Bohatyrov (1847). Líklegast var framrás b-peðsins snemma tafls of mikið strategískt álag á svörtu stöðuna og hvítur fékk mjög hættulega sjálfteflandi sókn og svörtu stöðunni líklegast ekki viðbjargandi.
Josef tapaði sinni skák gegn Vladislav Konvalinka (1758) og fyrri umferðin því ekki að gefa vel í Prag.
Betur gekk í seinni umferðinni. Reyndar tapaði Adam sinni skák en það tap var mjög grátlegt. Eftir erfitt miðtafl komst Adam í endatafl sem hefði átt að vera jafntefli með bestu taflmennsku.
Hér gerði Adam mistök með 63.Bxb4? og svartur náði að koma f-peðinu áleiðis. Það kostaði biskupinn og svartur fékk upp endataflið tveir biskupar gegn riddara. Alla jafna vinna biskuparnir en á einum stað hefði Adam getað tafið tapið þannig að besta taflmennska tæki yfir 50 leiki en það er mjög erfitt í skák þar sem tölva er ekki að tefla. Tap því niðurstaðan.
Lenka lagði skákmann frá S-Afríku og Josef lagði skákmann frá Furstadæmunum.
Lenka og Adam hafa nú 2,5 vinning en Josef hefur 1 vinning.
Summer Prague Open er opið mót sem fer fram eins og nafnið gefur til kynna í Prag í Tékklandi. Alls taka 208 skákmenn þátt en þó aðeins einn stórmeistari en þó fjöldi titilhafa. Lenka er númer 40 í stigaröðinni, Adam er númer 81 og Josef númer 122















