Áttunda umferðin var friðsæl hjá íslensku keppendunum á Summer Prague Open. Lenka, Adam og Josef gerðu öll jafntefli í sínum skákum.
Skák Lenku var beint. Hún mætti ungum Kazaka, Dias Alimbetov (1887). Alimbetov átti skákir á barnamótum fyrir um 10 árum en svo er eins og hann hafi horfið af skáksviðinu en væntanlega byrjað að tefla aftur nýlega. Lítið af skákum og greinilega andstæðingur sem ekki má vanmeta.
Lenka tefldi enska leikinn og úr varð mikil baráttuskák. Lenka tippaði á opnun a-línunnar í miðtaflinu en á endanum var það b-línan sem opnaðist. Lenka fékk einhverja sénsa en staða var flókin og bæði erfitt að meta stöðuna og velja leiki/plön. Fór svo að Lenka tók þráskák í tvísýnni stöðu.
Josef hafði hvítt og gerði gott jafntefli við WFM Mohota Swati (2050) frá Indlandi. Adam gerði einnig jafntefli við Stephan Pick (1878) með svörtu.
Lenka hefur nú 5 vinninga, Josef 4,5 vinninga og Adam 4 vinninga.
Summer Prague Open er opið mót sem fer fram eins og nafnið gefur til kynna í Prag í Tékklandi. Alls taka 208 skákmenn þátt en þó aðeins einn stórmeistari en þó fjöldi titilhafa. Lenka er númer 40 í stigaröðinni, Adam er númer 81 og Josef númer 122














