Gummi að tafli. Mynd: Halla

Guðmundur Kjartansson stendur sig vel á lokuðu móti í Danmörku, Copenhagen Chess Challenge. Tefldar eru tvær skákir á dag alla dagana nema fyrsta daginn og því var aftur tvöfaldur dagur á dagskrá í dag. Guðmundur fékk 1,5 vinning úr skákunum tveimur og hafði orku í að máta með biskup og riddara í þeirri seinni.

Í fyrr umferðinni mætti Guðmundur heimamanninum Viktor Haarmark Nielsen (2370) sem er FIDE meistari. Guðmndur hafði svart og hélt vel sínu með svörtu í Katalan-byrjun án þess að lenda í mikilli hættu. Hróksendataflið nokkuð auðvelt jafntefli.

Í seinni skákinni mætti Guðmundur svo Íslandsvininum FM Mikkel Manosri Jacobsen (2276) sem nýverið gekk til liðs við Breiðablik. Skák þeirra varð skemmtileg og upp kom óvenjuleg liðsskipan þar sem Daninn hafði tvo hróka en Guðmundur þrjá létta menn! Gummi hafði betur í endataflinu og á endanum gaf Mikkel hrókinn sinn fyrir síðasta peð okkar manns. Guðmundur þurfti því að sýna tækni í erfiðasta af grunnmátunum, að máta með biskup og hróki. Margir sterkir skákmenn hafa klikkað á þessu máti en Gummi hafði sitt á hreinu!

Guðmundur því taplaus með 3,5 vinning og situr í 3-4. sæti.

Copenhagen Chess Challenge er lokaður GM flokkur með 10 keppendum þar sem tefldar eru 9 umferðir, allir við alla. Tefldar eru tvær umferðir á dag, alla daga nema fyrsta daginn.

- Auglýsing -